Konur / karlar

Ég var að sýna sambýliskonunni þetta myndband og sá þá að hún hefur bara alls engan húmor eða þá að hún fattar þetta ekki. Hún brosti lítilsháttar að því fyrra eftir að ég útskýrði þetta með bílatryggingarnar enda er þar sannleikur á ferð. En þegar hitt var búið þá fór hún eitthvað að fabúlera um leti í karlmönnum og þess háttar bull. Ég sagði náttúrulega eins og var, að líklega væri karlgreyið skilinn,konan á spítala eða hún væri einhver kvenréttinda subba, sem að hugsaði illa um heimilið. Ekki væri þetta af leti,eins og hún hélt fram, að ég vaska ekki upp og héldi öllu hreinu,heldur væri hún ætíð búin að því þegar ég ætlaði til þess, líka gerði hún það betur en ég. Var hún nokkuð sátt við skýringu mína og tvíþurrkaði af eldhúsborðinu því áherslu. Það urðu engir eftirmálar og fékk ég ísinn refjalaust sem fyrrum.
Góðar þessar Viniette tertur með súkkulaðinu í. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband