5.8.2009 | 13:29
Pakk!
Ég hef sagt það oftar en einu sinni, þetta eru fífl. Þetta er ekki annað en skemmdarfýsn og bjánagangur. Og engum málstað til framgangs fremur en annar fíflagangur. Maður leiður yfir ástandinu í þjóðfélaginu og ekki er til hjálpar að fá fréttir af innbrotum og svona glæpaverkum. Því ekki er þetta annað en glæpaverk. Er ekki hægt að fá fíflasæringarmann á þetta pakk?
Skrifuðu illvirki á húsið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég er þér fyllilega sammála, fyrir hvaða málstað gæti þetta mögulega tilheyrt? Ætli við verðum samt ekki að passa orðalag okkar, við gætum vaknað í fyrramálið með olíumálningu á húsum okkar...
Garðar Valur Hallfreðsson, 5.8.2009 kl. 13:35
Ég er nú ekki að fatta þetta gagnvart þessari konu. Enn ég fer ekkert að gráta þó að hús Björgúlfs,Hannesar Smárasonar,og Jóns Ásgeirs væru sprengt í loft upp!
óli (IP-tala skráð) 5.8.2009 kl. 13:37
Það væri nú eftir öðru að fá smá slettu. Ef maður ætti hús,það er að segja.
Yngvi Högnason, 5.8.2009 kl. 13:41
Já einmitt, hún er forstjóri Alcans..... voru þeir í einhverri útrás...?
Garðar Valur Hallfreðsson, 5.8.2009 kl. 14:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.