4.2.2008 | 21:36
Gúmoren
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2008 | 00:56
Seinkun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.1.2008 | 12:30
Island best i heimi????????
Reyndar er byrjar her hver morgunn a morgunverdi sem ad samanstendur af heilsubaconi,heilsuskinku,eggjum og heilsuvofflum med siropi.Tetta er haegt ad borda her vegna tess ad hid islenska okur naer ekki hingad. Setti t.d. 18 gallon af bensini a jeppann i gaer og kostadi tad 55 dollara.Flestir eru bunir ad kaupa tad sem tarf ad kaupa en kannski verdur einhverju baett vid i dag. Annars er a dagskra ad fara nidur i Old Town i dag og kikja a gamla bila og fleira i sol og hita.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.1.2008 | 12:36
OK
Jamm. T`a er madur i Florida an islenskra stafa. Her birtir af degi um kl. 7. I gaer var mallid kannad og keyrt adeins um svaedid. Her er sumarvedur og blaer ad sunnan og yfir tuttugu stiga hiti yfir daginn. Slo tvi sjalfur vid seinnipartinn i gaer og nadi um tad bil 40 stiga hita i gaerkvoldi en er ordinn slarkfaer nuna. Erum a Lincoln jeppa af staerstu gerd og fer agaetlega um okkur tar. Fer nuna ad vekja krakkana og vid spaum i daginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.1.2008 | 14:59
Til hamingju Helga Dögg
Ég var að koma úr útskriftarathöfn sem að fór fram í Háskólabíói. Dóttir mín var að útskrifast í annað sinn á þessum stað, núna úr Háskólanum í Reykjavík. Þetta var afskaplega róleg og átakalaus athöfn. Eftir setningu var dálítið einkennilegt ávarp til nemenda flutt af einhverjum bankakalli frá JP Morgan í London. Ekki veit ég hvað JP Morgan hefur með Háskólann að gera og þar sem að blessaður maðurinn var að tala til nemenda þá fannst mér ekki par fínt að snúa afturendanum að þeim og tala um "success, love and listening". Svo eftir ágætt ávarp flutt af einum nemanda var tónlistarflutningur. Heyrðist mér að þar færu systkini þrjú með tvo til aðstoðar. Var flutningur þeirra þokkalegur en skondið að horfa á gítarleikara og lúðurblásara vera sem Tourette sjúklingar í flutningnum (með fullri virðingu fyrir TS). Eftir þann flutning byrjaði útskrift og afhending skírteina. Gekk það fljótt og vel fyrir sig og má segja að ég hafi verið nokkuð stoltur faðir þegar dóttur minni var afhent skírteini sitt. Til hamingju Helga Dögg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.1.2008 | 08:31
Duglegir strákar,komnir alla leið.
![]() |
Tökum einn leik í einu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.1.2008 | 13:12
Ónefni.
Um að gera. Leyfa fréttamanninum að nefna barnið svona þjálu og lipru nafni. Reyndar væri gáfulegast að sleppa þessu Seljan sem og öðrum eftirnafnaónefnum í landi sem að gumar sig af því að vera sér á báti, að fólki kenni sig við föður, ekki móður, í stað kjánalegra eftirnafna.
![]() |
Nennir ekki laga sig að tölvu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2008 | 19:05
Sjálfsánægja
Var að sjá dagskrárkynningu eitt skiptið enn á Stöð 2. Þar var verið að lofsyngja Kompás, fréttaskýringaþátt. Kompás þarf ekki að vera góður þó að hann hafi fengið tvisvar sinnum Eddu verðlaunin. Þau verðlaun eru ekki mælikvarði á eitthvað gott eða vont. Það verður enginn sjónvarpsþáttur góður þar sem sjálfsánægja stjórnenda gerir öll efnistök léttvæg miðað við athyglissýkina sem virðist hrjá starfsfólk stöðvar 2. Má þar benda á kryddsíld sem var hundleiðinleg og ekki í jafnvægi þar sem stjórnandi er tengdur einum þátttakana, peningalega. Sjálfstætt fólk, Ísland í dag og fleira þ.h., allt sjálfsupphafning stjórnenda. Man einhver eftir að auglýstur sé þar þáttur, sem ekki er stórkostlegur , einstakur eða þaðan af betri? Stundum verður manni óglatt þegar söngvarinn lætur setja bassann í botn þegar hann kynnir þátt eða mynd og minnist þá orða hans sjálfs "what a voice", sem útleggst eitthvað í þessa átt: "finnst ykkur ég ekki vera æðislegur". Er að heyra að alveg sé sama hvaða leiðindi á að sýna,allt er æðislegt. Skyldi H.C.Andersen hafa séð fram í tímann, hingað, þegar hann skrifaði nýju fötin keisarans?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.1.2008 | 19:48
Á vigtinni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2008 | 10:20
Betra á vorin
"Heyrðu" sagði kunningi minn við mig, "nú þegar þú ert hættur að reykja og drekka,ertu þá hættur öllu öðru líka"? Hann er kokkur þessi og hugsar mikið um kvenfólk. "Nei,nei" sagði ég , "alls ekki, minni kraftur reyndar en áður en alltaf tvisvar sinnum". "Nú"? sagði kokkurinn hissa, " tvisvar sinnum, og hvort skiptið finnst þér vera betra", spurði hann. " Tvímælalaust á vorin" sagði ég.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)