15.11.2007 | 16:34
Frekja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.11.2007 | 08:30
Morgunkaffi
Kunningi minn kemur oft í morgunkaffi til mín og ræðum við málin á alvarlegum nótum yfir bolla af venjulegu kaffi. Og oftar en ekki þá leysum við dægurmálin hraðar en að þau koma upp. Eftir margra ára morgunsamveru erum við orðnir nokkuð flinkir við lausn mála og kemur það til af því hvað við erum sammála um flesta hluti. Reyndar á hann það til að ræða um hitt og þetta sem er að gerast í Hafnarfirði og þá segi ég bara já og amen.Hann heldur nefnilega að Hafnarfjörður sé eitthvað númer. Eins er það með hann, að þegar ég segi eitthvað gáfulegt sem að hann ekki skilur, þá segir hann já og amen. Þetta er gagnkvæm kurteisi, sem að kemur með árunum.
Eins og hjá gömlum köllum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.11.2007 | 16:02
Smáborgarar.
Heyrðu!
Nú er þessi Edduhátíð að baki og menn lausir við það kjaftæði um sinn. Ef að þær myndir,þeir þættir og þeir leikarar sem að fengu verðlaun að þessu sinni, er það besta sem að boðið uppá hér, þá eru kröfur íslendinga til kvikmynda og leikara ekki háar. Í raun og veru eru kröfurnar engar, bara að það sé íslenskt og þá er allt í lagi, hversu lélegt og leiðinlegt sem það er. Og sérstaklega er athyglivert að sú mynd, sem að pupullinn nennti að sjá og borga sig inná(Astrópía) var ekki með hjá snobbpakkinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.11.2007 | 23:22
Aðgát skal .....
Það var í morgun að ég setti inn athugasemd á blogg hjá einhverri spritthænu sem heldur að maður verði ofurgóður við það að láta renna af sér. Hún var með mikla hneykslun á sjónvarpsmynd sem var sýnd kvöldið áður og var um fanga í Guantanamo. Það er alltaf skondið að lesa og heyra fólk, (sem allt að því gumar af neyslu fyrri daga og er búið að gleyma því þegar það hélt sjálfum sér og sínum nánustu í fangelsi sem aðstandendum og pyntaði þá andlega í sinni vímuleit) sem álítur sig vera bjargvætt í heiminum með því að hneykslast á því sem ekki er alveg að þeirra skapi. Og ef einhver dirfist að vera ekki alveg sammála þá er hann bannfærður og jákórinn tekur undir og segir skamm líka. Jamm, ég gerði þá firru að koma með tvíræða athugasemd inn á bloggsíðu án þess að vera í jákórnum. Reyndar var þetta með jákórinn misskilið og kannaðist konan ekki neitt við kórinn þann. En sá kór kemur víða við í athugasemdum hér á blogginu og er á þessa leið: Ég er 105 % sammála þér-, gargandi snilld bloggsins hér-, tær snilld-, ég er svo sammála þér-,og svo allir bjánalegu svipbrigðahausarnir sem til áréttingar fylgja hjá þessum kór. En kannski má ég ekki kalla fólk hér spritthænur eða annað álíka en þetta er bara svona. Á maður kannski að segja núna "úje" ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.11.2007 | 23:40
Vöggur
"Litlu verður Vöggur feginn" er mín skoðun á þessari könnun. Ef að "hvalaveinararnir" með sínar lagleysur, þó að vel séu spilaðar, eru settir í fyrsta sæti í þessari könnun þá er hún jafnmarktæk og kosningar í arabaríki.
![]() |
Ágætis byrjun er besta íslenska platan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.11.2007 | 13:58
Kvenhylli
Ég hef allaf verið mikið kvennagull og liðið bara vel með það. Eða það mætti ætla af kynnum mínum við konur því þegar þær sjá mig þá kikna þær allar í hnjáliðum. Ég hef alltaf verið ánægður með þetta en í gær var sáð fræjum vafa í huga mér. Samstarfskona mín hefur sérkennilegan húmor og sagði að þær kiknuðu ekki í hnjáliðum við að sjá mig, heldur væru þær að lækka sig til þess að heilsa mér: "Sæll litli kall".
Hvað ætli hún viti svo sem?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.11.2007 | 10:08
Jólaskraut
Það er yfirleitt IKEA sem er fyrst með jólaskrautið. En fyrir tveimur árum sló ég þeim við. Ég fékk mér límbyssu og límdi seríurnar fastar í gluggana og tók júðaljósin ekki niður og lét þetta standa ókveikt. Svo set ég bara í samband innan tíðar og lýsi upp. Og núna lendi ég ekki í neinu suði með uppsetningu á þessu dóti.
IKEA hvað?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.11.2007 | 16:31
Hver sem er.
Það var einhver gella með þátt á rás 1 áðan og það lak af henni umhverfisheilagleikinn og endurvinnsluslepjan í stríðum straum. Ljósadíóða var þar til umræðu og þótti henni og viðmælanda hennar það ekki gott orð og vilja þau kalla þetta ljósatvist. Þegar svona fólk er að láta í ljós umhyggju fyrir fyrir málinu þá má það ekki enda í tómri vitleysu vegna heimsku. Þegar þessi blessuð stúlka talaði síðar um " max kostnað" við ákveðið mál án athugasemda hjá viðmælanda þá skipti ég um rás. Kjánar.
Kemst hver sem er í þáttagerð?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.11.2007 | 08:40
Hrotur
"Fifty fifty". Önnur konan sem ég bý með hrýtur þó nokkuð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.11.2007 | 20:12
Er ég feministi?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)