Lýsi

Ég fæ mér alltaf lýsissopa eftir matinn á kvöldin og vitanlega mata ég sambýliskonuna á því líka. Hún fær eina skeið og er ekki með neitt múður en grettir sig mikið og þykir vont. Um daginn keypti hún óvart lýsi með sítrónubragði, reyndar ekki í fyrsta sinn og er það alveg skelfilegt á bragðið. Ég hef reynt að koma þessu niður en þykir ekki gott og gretti mig eftir því.En þar sem ég vil ekki henda þessu þá keypti ég venjulegt lýsi sem ég hef fyrir mig og mata hana á sítrónuglundrinu, hún grettir sig hvort sem er. 


Neikvæður

 

Sumum finnst ég vera með tómt nöldur á þessu bloggi mínu. Það er eflaust rétt og ætla ég ekki að reyna breyta því vegna þess að það er ekki hægt að breyta upplagi sínu. Það er í eðli mínu sem íslendingur (já ég veit að það á að vera stórt Í) að vera neikvæður nöldrari og eftir því sem að ferðast er víðar og aldurinn færist yfir, þá verður maður minna heimskur og sér hvað allt er kjánalegt hér. Það er hin íslenska heimska sem gerir mann leiðan og neikvæðan.  Í hinni íslensku heimsku felast margar athafnir og gjörðir flestra hér og þar á meðal mín, þar á ég bágt vegna þess að ég er fæddur hér og ræð ekki við það þó að ég vildi. Ef að einhver veit betur en ég um gáfur og yfirburði  íslendinga umfram aðra, þá væri gott að fá athugasemd þar um.Og einnig ef að einhver er í vafa um að íslendingar séu heimskir þá bendi ég á eftirfarandi: símatíma hjá Sigurði G og Arnþrúði Karls á útvarpi Sögu, Séð og heyrt er orðið meira en tíu ára, aðsókn að mykjubloggi Ellýjar, "Stelpurnar" með neðanmittisbrandara þykja sniðugar,fólk sem kýs VG og Framsóknarflokkinn (og reyndar hina líka), bloggsíður með nöldurblogg sem þetta og jákórinn í athugasemdum sumra bloggara, hina heilögu, sem fordæma útgáfu á negrabókinni, biblíuþýðingarnöldrara, íbúa í miðbænum sem þykir fínt að búa þar sem migið er á hús og ælt í heimreiðar. Ekki þarf að fletta dagblöðum lengi heldur til að sjá hvað ég meina. Margt fleira má benda á en ég er hættur í bili.


Íslenskur kjánaskapur.

Það var nú eftir íslenska aulahættinum að láta nappa sig og það fyrir smápening. 6,2 millur rétt duga fyrir einni utanlandsferð fyrir Ólaf Ragnar og fer hann 16 sinnum á ári.


mbl.is Bresku prinsarnir áttu ekki hlut að máli - maður af íslenskum ættum handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíu litlir svarthöfðingjar

Þetta er orðið alvarlegt mál, það er orðið erfitt að vita hvað má segja og hvað ekki.Það má ekki segja N.... og það má ekki segja Sve...... og ekki má segja menn samnafna yngstu eyjunnar okkar. Það má segja AfroAmerican en það er dálítið skrýtið, veit einhver hvar þessi AfróAmeríka er? Systursonur minn hafði ágætt orð um dekkra fólk hér áður fyrr,líklega vegna misheyrnar: Svarthöfðingi.
Mér finnst það fínt.

Risahækkun?

Það er nú kannski ekki verst að bensínið hækki. Kunningi minn sagði eitt sinn að það þyrfti að hækka bensínið um helming því þá gengi umferðin betur. Ha? sagði ég.
  Þá tíma öryrkjar og gamla fólkið ekki að þvælast um og tefja fyrir í umferðinni, útskýrði hann.
Ekki veit ég neitt um það.


mbl.is Eldsneyti hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvenkynsökumaður

Þær eru nokkuð lagnar við ýmislegt annað, eins og að þrífa,ryksuga,vaska upp og, jamm eins og ég sagði, lagnar. Sonur minn benti mér á þetta myndband. Hann er á réttri leið.

Badminton

Ég var að byrja í badminton aftur eftir nokkura ára hlé. Maður byrjar bara rólega, einn og einn tíma með Helgu Dögg til að komast í gang. Svo fór ég í tveggja tíma lotu einn sunnudaginn, það eru nokkuð sterkir tímar og rosagaman. Þarf að taka dálítið á en ég  fór náttúrulega létt með það. Maður finnur ekki fyrir þessu, svona rétt að maður hitni við þetta. Og er svo sprækur sem lamb eftir alla þessa hreyfingu. Gaman.

Íslensk leiðindi geta drepið

Nú á að drepa mann, það er lágkúra framundan. Einhver leiðinlegasta hljómsveit landsins fyrr og síðar og með eitt asnalegasta nafnið hefur starfað í 20 ár. Það er best lýsandi fyrir lélegan tónlistarsmekk landans að hljómsveit með svona leiðinlega tónlist og "söngvara" skuli starfa svo lengi. Og ekki bætir nafnið úr skák: Ný dönsk. Heimskir útvarpsmenn hafa nauðgað þessu nafni óbeygðu í tuttugu ár. Fifl.

Ég held að ég hlusti á Rondó næstu dagana til að komast hjá því að hlusta á hryllingsupprifjun á tónlist Nýrrar danskrar, sem eflaust á eftir að vaða uppi á flestum útvarpsstöðvum á næstunni.


Við viljum franskbrauð

Ég var að koma frá "tannlækninum". Tannlækninum eða hvað? Hann hefur aldrei læknað eina einustu tönn í mér, en hann hefur kíttað og borað og sparslað og potað og nöldrað og myndað og rukkað en aldrei læknað. Er hann þá ekki bara tannviðgerðarmaður eða gómeftirlitsmaður eða bara tannsi. Lækning kemur ekkert þarna nærri.

Brennivín í búðirnar.

Ég var að spá í þetta með brennivín í búðirnar. Það er eflaust bráðnauðsynlegt að fá vín og bjór þangað inn. Sá um daginn að einhver sjoppan er tilbúin með bjór í Hollandi undir merkjum Eurodraslshopper ef að leyft verður að selja hér, það er að ég held sama sjoppan og selur ekki sígarettur af því henni er svo umhugað um viðskiptavinina, en ekki af því að ekki er hægt að þrúkka niður verð hjá ríkinu eins og hjá öðrum birgjum. Halda þeir sem eru þessu meðmæltir að þetta verði einhver framför? Þetta verður neyslustýring eins og hún verður verst, sbr. matsölustaði þar sem þér er skammtað gos og bjór frá ákveðnum fyrirtækjum sem bjóða best og skaffa kæli og þ.h. Alltaf verður það fjármagnið sem að ræður og hefur ekkert með góðsemi þeirra sem vilja koma þessu á. Er einhver svo vitlaus að halda að hægt verði að fá bjór og vín að eigin vali í búðum, nei, þar verður bara til sölu það sem búðareigendur græða mest á. Og er einhver svo vitlaus að halda að afgreiðslufólk sem má afgreiða þetta fáist, það hefur hingað til ekki legið á lausu, hvað þá fólk sem hefur vit á víni. Misnotkun á víni spilar inní þetta og mun aukast, því bjór og vín er líka alkóhól, þó að sumir haldi annað.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband