31.8.2007 | 14:40
Lokað.
Gúmoren.
Nú hefur hringlandi skáldþulan lokað bloggi sínu og kemst maður ekki lengur til að lesa perverskar lýsingar hennar á draumórum, sem hún færir upp á vinkonur sínar. Hefur hún sett mikið niður með skrifum sínum að mínu mati og eru þau að öllum líkindum þýdd og staðfærð úr Playgirl Forum frá áttunda áratugnum eða þ.h. tímariti. Það er einhvern veginn ekki til í mínum huga sem erótískt lesefni, lýsingar frá misholdugum íslenskum flíspeysukellingum, berfættum í sandölum, t.d. að láta einhvern kalldindil sleikja augastein sinn aftanverðan og fleiri athafnalýsingar í þeim dúr.
Má ég þá frekar biðja um Andrés.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.8.2007 | 22:48
Skandall.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.8.2007 | 11:48
Með græðgisglampa í augum
![]() |
Ólíklegt að landeigendur muni una úrskurði matsnefndar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.8.2007 | 08:51
Barbapabbi
Ég fór á vigtina í lauginni í gær og komst að því að það er ekki sniðugt að fá sér einn súkkulaðimola eða íspinna í stað hverrar sígarettu sem reykt var fyrrum. Maður fer að líta út eins og Barbapabbi.
Það er vandlifað í heimi hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2007 | 22:50
My name is......
Endilega að fá þennan dreng hingað heim, það er alltaf þörf fyrir bráðefnilegt ungt fólk hér. Ég væri alveg til í að fá að heyra hann bera fram nafnið sitt á íslensku.
Skyldi hann fá inni hjá Einari S. til að byrja með?
![]() |
Aron Pálmi frjáls maður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.8.2007 | 19:56
Útlendingamaraþon
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2007 | 08:04
HA!
Gúmoren.
Til þeirra er málið varðar. Það tilkynnist hér með að ég heyri ekki vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2007 | 21:23
Af því bara
Gúmoren.
Þá er maður kominn hingað í sollinn aftur eftir Ameríkuferðina. Var búinn að blogga helling áður en heim var komið en fartölvan sem bloggað var á varð bensínlaus rétt áður en vistað var og féll mér það svo miður að ég nennti ekki að byrja aftur. En Ameríkuferðin endaði vel, án óhappa eins og að var stefnt. Og á maður eftir að sakna frábærra hjólavega og allra aðstæðna sem að Ameríka býður uppá, þar sem hægt er að hjóla á meðan orkan leyfir, ólikt því sem hér er.
Og af því að ég er kominn í gang þá má ég til með að minnast á "skemmtun". Núna er í sjónvarpinu bein sending úr Laugardalnum frá tónleikum. Það er eitthvað sem að ég hef aldrei skilið, að horfa á einhverja misgóða tónlistarmenn flytja sín verk, bjöguð og oft í það leiðinlegum útsetningum að fólk myndi aldrei láta bjóða sér ef að á diski væri og kalla það skemmtun. En ég er ekki alvís og rekst líklega ekki eins og hópsálir sem einfalt er að segja hvað er skemmtilegt og hvað er ekki skemmtilegt. Ég vil helst hafa eitthvað um það að segja sjálfur hvað mér finnst skemmtilegt og hvað ekki. Verð ég oft fyrir því að þykja skrýtinn af þeim sem við mig kannast. "Ha?, þykir þér ekki gaman á tónleikum (leikhúsi, sýningum of fl.þ.h.) " er spurning sem að ég fæ oft. Og þegar ég segi nei, þá er horft á mig galtómum augum og sagt:" þú ert skrýtinn" eða" þú ert einstrengingslegur" eða "þú ert sérvitur". Og svo er farið heim og öskrað á börnin, farið í fýlu við konuna eða kallinn laminn eða ullað á nágrannana. En tónleikar eru ekki skemmtun, frekar en íslenskur fótbolti.
Jamm, það er líklega bara ég sem er skrýtinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2007 | 01:53
Endar senn.
Gumoren.
Ekki var utlitid bjart tegar vaknað var i morgun. Skítakuldi(61F) og smá rigning. Eg for snemma einn i "ham and egg" sem fyrrum og var stoppaður fyrir of hraðan akstur, "ekkieð "teinid" a mer, en personutofrar redduðu mer tar og slapp eg med ósk um goda heimferð hja Officer Donald.
Svo var lagt af stað eftir að húsinu var skilað. Eigandinn var nokkuð glaður með okkur tvi hann bauð okkur husid að ari fyrir minni pening, "Well, if you come back next year,I'll give you a better price, yeah". I byrjun var kuldagallinn notaður en skipt yfir i léttara tegar solin for að skina og var eg a stuttbuxunum eftir tad. Tad er nu kannski ekki gáfulegasti fatnaðurinn en tad er alltaf ahaetta tegar sest er a hjól og tetta er mín akvordun. Folk er litid i að nöldra her um hluti sem að tvi kemur ekki vid. En allt gekk vel hingað og var stoppað i hammara og bensín eftir "behag". Her kostar gallon af bensíni ca. 2.9 $ og þykir dýrt hjá heimafólki en að fylla Hallann fyrir 8$ þykir okkur ekki mikið. Annað verðlag er eftir tvi.
Meira seinna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2007 | 17:59
USA
Gumoren.
Litið hefur verið af tölvum a leið okkar og ekki netsamband til staðar. En i dag eru ferdafelagarnir i Sturgis en eg her i Rapid City, sem sjotiu tusund manna borg i SD. Her er hitinn mikill og vedrid hefur verid mjog gott sidan vid komum fyrir utan storskurir a leiðinni hingað. Hitinn er a Fareinheit 95-105 dag hvern. Eg er búinn að hjóla um 1300 mílur og a enn eftir að baetast við. A þessu svaedi gengur allt ut a motorhjol og hvar sem farið er eru hjól, solutjold með hjolatengdu dóti og krómi, bara nefna tad. I gaer og i fyrradag forum vid flottar hjolaleidir, gljúfur og sveitavegi og er alveg otrulegt að sjá hvernig umferð fleiri tusund hjóla gengur fyrir sig eftir að hafa verið i 1 maí hjolakeyrslu heima. Hofum við farið þekktar og vinsaelar leiðir, seinfarnar, og sveitavegi sem er svakalega gaman að hjóla. Erum við nokkuð lettklaedd a hjólinu út af hita, vid Villi bara a stuttbuxum og hin i litlu meira. Tad tarf ad stoppa oft til ad drekka vatn eða annað og baeta a solarvornina.Annars er umferðin her ser kapítuli og eg hef ekki enn sed beyglaðan bil, sem er ekki alveg eins og heima. Husid sem að við leigðum er afskekkt og hofum við tad fínt tar. I fyrradag fékk folkid sér tatto a arm og legg, fyrir utan mig . Tad var ekki til mynd af Dullaralogoinu svo eg sleppti tvi. En mikið er buid að skoða og eitthvað buid að kaupa, to innan skynsamlegra marka vegna þess að töskurnar a hjólinu taka ekki mikið.A morgun, sunnudag leggjum við i hann til Huron, sem er miðja vegu hedan og til Minneapolis, tangad sem við komum a mánudaginn.
En meira annað kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)