18.5.2007 | 17:12
Fyrir vestan
Gúmoren
Jæja, það er skítt að vera hættur að reykja. Tók daginn snemma og bara tveir voru vaknaðir í bænum þegar ég fór út í morgun. Er búinn að fara víða og gera margt í dag. Fór í Önundarfjörð í morgun, á Flateyri og Kirkjuból í Korpudal, þar sem sumrum var eytt í vinnumennsku forðum. Var tekið vel á móti mér þar af Páli og Höllu, sem reka þar nú gistiheimili yfir sumartímann. Sat þar drjúga stund við spjall.
En einkennilegt er hvað allt smækkar með árunum, þ.e. hús,dalir,vegir og fl. En vegurinn að Kirkjubóli er nú ekkert spennandi. Ekki veit ég hvað vestfirðingar eru alltaf að monta sig af vegunum sínum. Veðrið hefur verið með besta móti í dag, þrátt fyrir mikinn morgunkulda. Ég skrapp í smá snyrtingu hjá Villa Valla, hef ekki farið í klippingu í yfir þrjátíu ár, það er að segja hjá honum.
Kunningi minn hringdi í mig þegar ég var að borða í hádeginu og lýsti áhyggjum af suðurferð hjá mér. Sagði hann mér til syndanna með þetta feigðarflan, að vera að þvælast þetta á hjólinu. "Þegar þú ert búinn með súpuna, þá ferð þú niður á Flytjanda og pantar flutning á hjólinu og ferð svo heim með flugi. Það verða 25 metra sviptivindar á leiðinni og þú fýkur bara". Hann ræddi þetta með miklum þunga og þar sem ég vissi að hann er veðurglöggur maður,þá þakkaði ég góð ráð og fór að þeim. Mikið er gott að það eru til menn sem hugsa fyrir mann, þegar maður er ekki fær um það sjálfur.
En, nú er að drífa sig út og hitta eitthvað af fólki og hafa gaman af.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.5.2007 | 22:17
Kominn vestur
Gúmoren .
Þá er maður kominn á einn af afkimum heimsins. Sit hér í faðmi fjalla blárra, á gistiheimili eins og þýskur túristi í bláum sokkum.
Það gekk nú ekki andskotalaust fyrir sig að komast hingað á hjólinu. Hálka,skafrenningur og austan 10 á Steingrímsfjarðarheiði. Maður var nú ekki beint gáfulegur með hjólið rennandi til og frá og fast vegna hálku annarslagið. En þetta reddaðist án áfalla og komst ég niður á mölina og í rokið, heill. Eins og ég sagði í gær þá ætlaði ég að lulla þetta og varð það úr. Annað var ekki hægt vegna veðurs. Alls tók þetta lull rúmlega átta tíma og oft hefur maður verið sneggri. En síðan ég kom hingað er ég búinn að rúnta um og skoða plássið sem hefur tekið miklum breytingum síðan ég bjó hérna. Hitti Rúnar Þór og Örn Jóns og tóku þeir lagið fyrir mig niður í Alþýðuhúsi. Þeir ætla víst að spila hérna eitthvað um helgina.
En meira á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2007 | 21:16
Á leið vestur.
Gúmoren.
Nú er ég einn heima, sem kemur nú ekki oft fyrir. Er að gera mig kláran í vesturför.Það eru endurfundir vegna fjörutíu ára fermingar afmælis Ég ætla að skella mér á hjólinu á morgun og lulla þetta í rólegheitum,ekki nema fimmhundruð km. hvora leið, ég hef nógan tíma. Það verður eflaust gaman að hitta skólafélaga aftur ,sem maður þekkti betur þegar Engelbert Humperdinck var vinsæll. Svo dúllar maður eitthvað með þeim fram á sunnudag, djamm en líklega að mestu rólegt. Þau eru orðin það gömul.
En það er aftur á móti verra hér núna með tiltekt. Konan sem býr hérna er ekki heima og ég þarf náttúrulega að gera allt sjálfur, finna hrein föt sem eru falin í einhverjum skápum eða skúffum og setja í tösku, ef ég finn einhverja. Ekki gleyma tannbursta og þ.h. Ég bara skil þetta ekki. Ég var búinn að segja henni í febrúar að ég færi vestur núna og þá er ekkert tilbúið.
Týpiskt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2007 | 08:07
Ég er ekki hundfúll
![]() |
Mörður Árnason: Hundfúll" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2007 | 19:36
Til hamingju.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2007 | 21:05
Hraðakstur
Rakst á þetta myndband og finnst að sem flestir ættu að sjá það.
http://www.youtube.com/watch?v=DEDjfxzec0Q
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2007 | 16:33
Nöldur.
Ég skil ekkert í þeim Einari og Guðjóni Arnari að vita ekki að konur búa líka í sveitum. Ég er líka handviss að Einar Oddur hefur sest niður og skrifað þessi bréf sjálfur.
Það er fátt sem hundstungan ekki finnur.
![]() |
Biðst afsökunar á bréfi til bænda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2007 | 16:19
Kaffi og sígó.
Gúmoren.
Það er kannski yfirlæti að vera að minnast á það en það eru þrjátíu dagar síðan ég reykti síðast. Það hefur margt breyst á þessum tíma og er ég farinn að geta sofið á hliðinni og er ekki með dauðahrygluna þegar ég vakna á morgnana. Þarf heldur ekki að vera alltaf klár á að eiga sígópakka eða tvo á lager. Auðvitað hefur þetta pirrað mann stundum en þetta hefst með þrjóskunni. Mér skilst að það sé bráðhollt að vera reyklaus og býst ég nú við að verða eldgamall, allt að níutíu ára. "OMG" hugsa líklega börnin mín núna og ég reyndar líka. Ef ég fer ekki að fá í happdrættinu bráðum, dágóða summu (þetta er ekki frekja), þannig að ég verði ekki á vonarvöl það sem eftir er, þá byrja ég bara að reykja aftur og drepst um sextugt eins og þessir nikotínfíklar gera. Því ekki nenni ég að vera hérna þrjátiu árum lengur en ég þarf, alltaf skítblankur.
Það er reyndar full ástæða til að vera svartsýnn á framtíðina ef kosningarnar fara illa um helgina og fullt af fólki þ.e. ungu vinstri sinnuðu fólki, sem var ennþá á bleyjualdri þegar síðast var vinstri stjórn hér og veit þar af leiðandi ekki mikið um þá speki er þá var fylgt, kemst að með sína fáfræði. Það fylgir sínum eldri leiðtogum með glampa í tómum augum og eltir bullið í þeim eins og fólkið í Jonestown fylgdi sínum leiðtoga blint um árið, brosandi.
Ég er reyndar ekki mikið uggandi yfir þessu, því ég hef lifað af skelfingar Ólafs Ragnars, Lúðviks,Magnúsar Kjartans, Hjörleifs, Steingríms J og fleiri afturhaldsseggja hér við stjórn. Solzhenitsyn gat þetta í sínu landi, ég líka hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2007 | 21:40
Eurovision og leður
Gúmoren.
Jamm, þá er þetta kosninga bull að verða búið. Bara þrír dagar eftir af innantómum loforðum, þar sem frambjóðendur bjóða mér uppá fallegt líf eins og Vottar Jehóva gera ef ég kýs þá. Ég held að ég kjósi á laugardaginn, án þess að það skipti miklu máli, á bara eftir að fá línuna frá Lóu systir eins og vanalega. Það hefur víst aldrei skipt máli hvað ég vil, hún er elst og ræður þessu.
Það var á einhverri bloggsíðunni ,skoðanakönnun um hvaða flokksformann maður vildi fá í kvöldmat. Ég valdi Adda, sem reyndar fæstir gerðu. Ég myndi að vísu ekki gefa honum atkvæði mitt en einna skástur er hann í návígi af þeim sem í boði eru. Við gætum svo tekið nokkur bobb eftir ísinn.
Það eru flestar kellingar ógurlega spenntar fyrir þessu Eurovision dóti á laugardaginn. Hann skorar drjúgt hjá þeim sá rauðhærði, enda leðurklæddur vel og á besta aldri eins og ég. Því var það, að um daginn er ég fór á mótorhjólinu í bankann,leðurklæddur og flottari en einhver Eurovision gaulari, að yfir mig þyrmdi þegar gjaldkerinn sagði: Hvað get ég gert fyrir þig , leðurstubbur?
Ég var víst ekki með þanið brjóst og sperrt stél þegar ég yfirgaf bankann eftir að hafa lagt inn fimmþúsund kallinn.
Kannski ég athugi með Landsbankann, þær kunna gott að meta þar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2007 | 10:07
Undirskrift.
![]() |
Biðja Arnold að náða Paris |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)