7.5.2007 | 20:51
Bara tuð.
Nú hefur ekki verið bloggað lengi. Líklega hefur það verið andleg þurrð sem því hefur hamlað frekar en gott veður til hjólatúra. En eitthvað hefur loksins verið hægt að burra hér á þessu guðsvolaða landi. Fór í gær á Reykjanesskagann við fjórða mann og í dag fylgdi ég utanförum, sem eru á leið í Evróputúr, til Hvolsvallar og ætluðu þau eigi lengra en að Klaustri í fyrsta áfanga. Líklega hafa þau Danmörku og hluta Þýskalands af, á þeim fjórum vikum sem ætlaður er í túrinn með þessum hraða. En ég óska þeim góðs gengis sem og hinum félögunum sem leggja í hann á morgun, einnig eru þessir að fara í útlandatúr, góða ferð bræður.
Annars að öðru. Það er varla opnað blað né blogg, að ekki sé þar allt yfirfullt af blaðri um komandi kosningar og hvað og hvern á að kjósa. Ekki er þetta beint skemmtilegt og ekki allt gáfulegt. Ekki ætla ég að blogga neitt um það núna en kannski síðar. En núna er ég dálítið spenntur fyrir kosningasjónvarpinu á stöð tvö, ekki því hversu skemmtilegt það verður og ekki hvað þar verður sagt heldur hver af skýrendum þar, froðufellir fyrst af æsingi(aðallega út því hversu góður skýrari hann er) og þarf að fá súrefniskút eins og langt genginn reykingamaður til að geta haldið áfram að segja okkur frá úrslitum útnárakosninga, sem litlu skipta. Nema fyrir þá sem komast á spenann, en meira um það seinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2007 | 09:44
Knippi
![]() |
Vorhreinsun í Reykjavík hefst um helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2007 | 23:38
Wang
Gúmoren.
Ég ætlaði að hringja til Kína og heilsa uppá einn sem ég þekki þar.Það var ekki eins auðvelt og ég hélt.Náunginn heitir Wang Li og eru nokkrir þar sem heita sama nafni. Ég leitaði á netinu að símanúmerinu hjá honum og var það hægara sagt en gert því ég veit ekki hvar hann á heima.Þannig að ég hlóð niður öllum símanúmerum sem eru hjá þeim er heita Wang og tók það smá tíma því það eru um 93 milljónir Kínverja sem heita Wang og nokkru fleiri sem heita Li. Nú er ég með nokkrar milljónir símanúmera því ekki hafa allir sem heita Wang í Kína síma. Nú er bara að byrja á fyrsta númerinu, hringja og spyrja um Wang.Ef ég hringi í dag til Kína til að leita að Wang, þá gæti ég verið heppinn og hitt fljótlega á rétt númer en miðað við mína heppni þá tæki þetta lengri tíma. Ef ég hringi 700 símtöl á dag í hundrað ár, þá væri ég búinn með helming þeirra númera sem ég hef núna, þ.e.rúmlega 25 milljón númer. Og á hundrað árum bætist líklega eitthvað við og einhverjar milljónir af Wang deyja,þannig að ég held að erfitt verði að finna Wang. Kannski að ég sleppi þessu bara, mig langaði bara að heilsa uppá kallinn.
Það eru 319 sem heita Jón Jónsson í íslensku símaskránni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.4.2007 | 22:28
Laus??
Gúmoren.
Í einni lotu,upp á þriðju hæð án þess að blása úr nös, mikið rosalega er ég heilbrigður.
Ég hef fengið nokkra plúsa undanfarið í ferilskrána frá samferðafólki vegna reykleysis. Er ég þakklátur fyrir stuðninginn. Var reyndar í vafa um hvort ég ætti nokkuð að vera opinbera þetta fyrr en síðar. En í dag gengur þetta bara vel, þetta er spurning um hugarfar og jákvæðni en ekki hvað magnylsalarnir geta prangað inn á mann miklu nikótíndrasli. Ég hef ekki mikla trú á þesskonar dóti frekar en hrukkukremi.
En nú er allt uppá við,heilsan batnar og fjárhagurinn líka og ef að öllu, sem áður var eytt í sígó, verður haldið til haga og sparað ,þá verð ég orðinn milljónamæringur innan þriggja ára. Ég þekki konu sem hætti að reykja fyrir 25 árum og lagði hún fyrir svokallaða sígópeninga og ekki löngu síðar keypti hún sér hest, gott ef það var ekki arabískur gæðingur. Þannig að ekki er að efa að ég verð ríkur eins og hún, ef ég verð staðfastur.
En best er að vera laus og ætla ég að njóta þess á meðan ég endist.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2007 | 09:15
Sjö dagar
Gúmoren.
Sjö dagar. Það er ekki langur tími í lífi manns, sjö dagar. En þegar maður hefur reykt stanslaust í rúmlega fjórtán þúsund daga þá eru sjö dagar án reyks langur tími.
Jamm, nú hefur maður ekki nartað í filter í heila viku.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.4.2007 | 08:29
Páskaegg.
Gúmoren.
Þegar ég bjó með konu barnanna minna var ýmislegt gert sér til dundurs fyrir börnin. Þar á meðal var fyrir páskadag, að páskaegg voru falin og gekk misvel hjá börnunum að finna þau. Fór það oft eftir því hver faldi eggin hve fljótlegt var að finna þau. Ég var nokkuð lunkinn við að fela og endaði leit oft með gráti og gnístran tanna þegar einhver unginn fann ekki sitt. Þurfti þá að bregða fyrir sig leiknum:kaldur-heitur og gekk þá fljótt að finna. Þessi siður aflagðist hjá mér að mestu fyrir nokkru en hef ég þó þurft að fela eitt skipti eða tvö fyrir þann yngsta er hann hefur verið hjá mér um páska og hefur endað þá með heitu eða köldu.
Þessa páska var enginn feluleikur heima hjá mér en börnin fengu páskaegg engu að síður. Dóttirin hefur eflaust fengið ástmögur sinn til að fela en sá yngsti var í sumarhöll með móður sinni þar sem eflaust hefur verið falið fyrir hann. Eldri sonurinn var einn heima hjá sér og enginn til að fela fyrir hann. En þar sem ég vissi að hann hefur gaman að páskaeggjaleit, þá sagði ég honum er ég afhenti honum eggið á laugardaginn hvar hann ætti að fela það. Ég vissi nefnilega af góðum stað sem ég hafði ekki notað þegar ég bjó þar. Gekk þetta allt eftir og vissi ég ekki betur en að hann hefði farið til leitar í dagrenningu í gær. Lengi dags í gær var ég að sinna mínum málum og heyrði ekki frá honum en sá yngri hringdi um hádegisbil með páskakveðju.
Það var undir kvöld er ég sat og beið eftir fólki í mat að síminn hringdi og sagt var brostinni röddu: "Ég finn ekki páskaeggið".
Jamm, ég veit um bestu staðina til að fela á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.4.2007 | 10:16
Upp, upp mín sál....
Gúmoren.
Það var á páskadagsmorgun fyrir fjórum árum að ég tók mér tveggja vikna frí frádaglegu lífi meðal venjulegs fólks. Ég hafði ekki verið í takt við samferðamenn í heil þrjú ár og var orðinn uppgefinn á sál og líkama. Þetta var þá ákvörðun sem ég hefði átt að taka löngu fyrr en á þessum tíma var ég ekki maður til eins eða neins, hvað þá að huga að eigin velferð. Hafði ég á þessum tíma reynt mjög á þolfrif minna nánustu og nú var kominn tími til að bæta sig.
Á þessum fjórum árum hefur margt breyst, ný áhugamál ,nýjir vinir og kunningjar, traust hjá fjölskyldu, allt virðist mér þetta í góðum farvegi. Áhyggjur fyrri ára hafa horfið og í dag eru áhyggjur mestar út af minniháttar málum eins og mótorhjólaveðri og því hvað íslendingar eru grænvitlausir. Sem sagt: allt upp á við
Ég þakka stuðninginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2007 | 22:03
Heimilislegt.
![]() |
Krefjast banns á svissneska Evróvisjónlagið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2007 | 14:03
Eftirspurn?
Gúmoren.
Eftirspurn eftir .....þetta heyri ég oft og les frá fréttamönnum.
Skyldi ég fá að heyra eitthvað í þessum dúr einhverntíma hjá hinum ljóngáfuðu fréttamönnum: Eftirspurn eftir eftirlaunaþegum til eftirvinnu eftir að eftirlaunaskattleysismörk hækkuðu eftir mikið þref......
Mér er spurn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2007 | 22:36
Bloggið.
Gúmoren.
Ég hef verið að spá dálítið í þetta blog. Hverjir skrifa og um hvað þeir skrifa. Ekki hef ég tíma til að lesa þetta allt enda misjafnt að gæðum og ekki alltaf það mest sótta, það besta aflestrar. Sumir skrifa um pólitík og aðrir um eitthvað sem er merkilegra, einni finnst gaman að skrifa um hve margar konur eru hjá Agli í silfrinu og kann hún að telja. Sumt af þessu er læsilegt eins og t.d. Önnu K. sem er gagnorð þó ekki sé ég alltaf sammála henni. Einnig kemur hann sterkur inn frá Reykhólum enda vanur að vestan. Fleiri koma vel inn og þá helst þeir sem skrifa lítið um pólitík. Skrif í þá áttina eru oftast leiðigjörn,því hvorki menn né málefni í pólitík eru skemmtileg. Auk þess er í þeim skrifum ætíð leppur fyrir öðru auga, annað hvort því hægra eða vinstra. Það er afskaplega þreytandi þegar menn halda að þeir leysi stjórmálavanda Íslands með blogskrifum.
Einnig finnst mér gaman að sjá hvað margir heimsækja hin og þessi blog og virðist ekki vera nein regla önnur en sú að vera tengdur sem víðast til að vera lesinn. Að vísu þýðir lítið fyrir einhverja bullukolla að búast við aðsókn á sína síðu, eitthvað verður víst að vera bitastætt þar. Sá sem hefur upp á síðkastið verið með mest sótta bloggið er "gettu Betty Crocker" kallinn með allt að sex þúsund innlit á dag. Er það vel því þar eru skrif frekar um daglegt líf en annað og húmorinn í lagi. Aðrir skora heldur minna.
Ég er nú bara nokkuð ánægður með mína tíu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)