Færsluflokkur: Bloggar
2.1.2008 | 10:14
Ófyndið fólk
Jamm.
Þá er hið daglega amstur hafið á ný og maður getur verið eðlilegur á ný. Áramótin liðin með tilheyrandi fylleríi hjá sumum og öðrum sem að bláedrú horfðu á arfaslakt skaup þar sem að auglýsingin í miðjunni var einna fyndnust. Ekki var við miklu að búast fremur en fyrri daginn, húmorslausir menn geta ekki gert gamanþátt.
Í Fréttablaðinu í dag er Sigurjón Kjartansson nefndur "handritsguð". Ef að svo er, þá er illa fyrir okkur komið, því þó að stöku brandari hafi þaðan komið þá hefur honum og samferðamönnum hans, tekist betur að láta mann fá kjánahroll og verða frábitinn íslensku "skemmtiefni" í gegnum tíðina. "Svínastelpusúpa" liðinna ára hefur gert það að enginn er áhuginn hjá mörgum á íslensku efni og verst er að maður getur ekki beðið af sér þessa ófyndnu kynslóð "brandarakalla".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2008 | 21:51
Nýtt ár
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2007 | 18:32
Gamlárskvöld
Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.12.2007 | 04:35
Upp,upp
Upp,upp mín sál og allt mitt geð...
Þetta á nú kannski betur við á föstunni en á aðfangadag, sem að nú er runninn upp. Þetta hefur aldrei verið neinn sérstakur dagur hjá mér en hann kemur æ og reyni ég að fljóta með í þessu algleymi fólks í kringum mig. Í minningunni er enginn dagur jóla öðrum fremri en stundum var gaman að pakkagleði barnanna er þau voru lítil. En einhvers staðar er samt eitthvað og mest er gaman að daginn er að lengja. Í dag fer ég hinn árlega pakkarúnt með krökkunum eins og ég hef gert síðustu tuttugu ár. Að því loknu ætla ég að heimsækja kunningja minn og hlusta hjá honum á Jussa Björling syngja "Ó helga nótt", því tónlistin sem að telst til þessa tíma er mér að skapi. Á ég reyndar ekki við þá tónlist sem að mest heyrist á auglýsingaútvarpstöðvunum.
Um leið og ég óska þeim er þetta lesa gleðilegra jóla og friðsældar þessa daga, þá kemur þessi sálmur upp í hugann:
Í dag er glatt í döprum hjörtum,
því Drottins ljóma jól.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2007 | 19:40
Í lauginni
Var að koma úr lauginni með stráknum.Þegar maður er búinn í heita pottinum er voða gott að raka sig og koma spic and span heim. En speglarnir í Árbæjarlauginni eru ekki nógu góðir.Þeir eru nógu háir en hálf asnalegt er að sjá sig ekki allan þegar maður stendur á hlið. Og þegar að rakstri kemur þá kemst maður ekki nógu nálægt, það mætti nú alveg fræsa inn smá boga í borðið svo að maður komist nær speglinum. En þetta reddast alltaf og ég segi ekki að kannski mætti maður missa eins 10 kg. og kæmist þá nær en það er ekki víst.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.12.2007 | 14:47
Konur / karlar
Góðar þessar Viniette tertur með súkkulaðinu í.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2007 | 21:10
Jólalögin leikin og sungin
Ég var að spá í þessi jólalög sem maður er búinn að heyra síðan í gamla daga.
White christmas eftir Irving Berlin sem var gert frægt af Bing Crosby í bíómyndinni Holiday Inn árið 1940.
Rúdolf með rauða nefið frá 1949 eftir Johnny Marks.
Let it snow, let it snow,let it snow er eftir Jule Stein og Samuel Cohen, komst í fyrsta sæti Billboard listans 1946 og er talið jólalag þó að ekki sé minnst á jólin í textanum.
Silver bells frá 1951 eftir Jay Livingstone og Ray Evans og varð vinsælt í flutningi Bing Crosby og Carol Richards en upphaflega flutt í bíómyndinni The lemon drop kid af Bob Hope og Marilyn Maxwell. Þetta eru nokkur af vinsælustu jólalögum allra tíma og það sem að skilur þau kannski frá öðrum jólalögum er að þau eru samin af gyðingum. Og eins og flestir vita þá halda gyðingar ekki jól en það er "buissness" í jólalögum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2007 | 21:45
Níu dagar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.12.2007 | 11:16
Jólabækurnar
Ég var að spá í jólabækurnar, enn og aftur. Þær vinsælustu virðast vera einhverskonar morðsögur, sem að gerast hér á landi og eru þá líklega með íslenskar persónur til umfjöllunar. Ekki hef ég lesið neitt af þessu og ætla mér það ekki. Helst kemur það til af því að í gegnum tíðina hef ég lesið mikið af glæpareyfurum, sem að geta verið trúverðugir vegna þess að þeir gerast í löndum þar sem að morð eru tíðari en hér og oft skipulögð. Þar af leiðandi er hægt að leika sér með skáldsöguformið þar á ýmsan hátt. En hér á Íslandi finnst mér þetta vera bjánalegar tilraunir í skáldsögum,reyndar finnst mér flestar íslenskar skáldsögur aumlegar, því að hér á landi hafa ekki verið framin skipulögð morð í manna minnum. Flest ef ekki öll morð hér hafa í gegnum tíðina verið framin af ólánsmönnum, drukknum eða undir áhrifum annarrar ólyfjan og þess vegna ekki skipulögð, þannig að ekki hefur þurft kjammanagandi lögreglumenn í lopapeysu til að leysa þau.Lausn í þeim málum hefur oftast legið ljós fyrir. En þetta blessaða fólk sem að skrifar þetta þarf líka að lifa og ef að vel selst hjá því þá er það gott. En í guðanna bænum ekki tala eða skrifa um þessar bækur sem einhver listaverk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.12.2007 | 11:30
Hroki femínistans
Ég las um daginn bloggfærslu sem að mér fannst ákaflega skrýtin. Þetta var á síðu Sóleyjar Tómasdóttur og kom þar uppgjöf og hroki femínistans vel fram. Þar segir hún að bloggið sé mikilvægt lýðræðinu en hvað hefur það með lýðræði að gera hvort ég að aðrir tjáum okkur hér? Hér eru engar ákvarðanir teknar er varða almannaheill. Hér eru bara teknar ákvarðanir um hvort að einhver setji inn athugasemd við eitthvað blogg, gáfulega,dónalega eða bara "já ég er sammála", og hefur það ekkert með lýðræði að gera. En nú ber nýrra við, nú er blessuð stúlkan búin að loka á athugasemdir við bloggið sitt og þá er allur vindur úr. Því skemmtilegast við þetta blogg hjá henni voru athugasemdirnar, þ.e. hve margir voru ósammála og tóku hana í gegn fyrir kjánaskap. Nú er það víst búið og vísar hún á skrifstofu borgarfulltrúa fyrir athugasemdir,munið að panta tíma . Hvernig er þetta með vinnu kjörinna borgarfulltrúa, eiga þeir að svara fyrir bull á bloggsíðu á skrifstofu sinni?
P.S.
Voruð þið búin að heyra um femínistann sem að fór ekki í guðfræðinginn, heldur fór guðfræðingurinn í hana?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)