Færsluflokkur: Bloggar

Biðlar?

Það er margt skrýtið í útlöndum, móðir vill giftast/kvænast dóttur sinni? Í minni bók hefði þetta verið ákall eða bæn. Það eru bara karlmenn sem að eru biðlar.
mbl.is Biðlar til dóttur sinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stelpur

 

Nú er sonur minn búinn að vera hjá mér rúmar tvær vikur. Okkur kemur ágætlega saman þó stundum komi upp ágreiningur um hvaða stöð í útvarpinu á að hlusta á og í hvaða sundlaug á að fara í það skiptið, því að sund er stundað dag hvern. Stærri mál koma yfirleitt ekki upp. Í sundinu á helst að vera mikið um aðgerðir og leik en heldur er farið að draga af þeim eldri í þeim málum og vill hann verja meiri tíma í heita pottinum, skoða stelpurnar, þó að ekki sé munað til hvers, og fleira í þeim dúr. Sá yngri vill ekkert með stelpurnar hafa og veit heldur ekki til hvers á að vera að glápa á þær. Þetta er skrýtið, vegna þess að meðalaldur okkar er rétt um þrjátíu og  tvö ár.


Reisuleg bygging

Ég fór í nýja húsið við Smáratorg í gær. Þetta er mikið og hátt hús og verður eflaust mjög flott á að líta fullklárað. Ég klökknaði af hrifningu yfir verkfræðilegu afreki íslendinga þarna, rúmlega 77 metrar að hæð og tuttugu hæðir. "Ísland best í heimi" flaug í gegnum huga minn.
    Fyrir 105 árum var byggt hús í New York, árið 1902, það er enn uppistandandi og er 87 metrar að hæð og tuttugu og tvær hæðir. Þetta hús kallast Flatiron byggingin.   Ísland, best í heimi?

Aðventan

 

Jæja, fyrsti sunnudagur í aðventu. Búið að setja allar sjöljósastikur í húsinu í samband og gluggaseríurnar líka. Einnig búið að fara með sambýliskonuna í Smáralind og leyfa henni að valsa þar um í frjálsum tíma. Var að klára hryggbitann og er að bíða eftir að konan klári að vaska upp svo að hún geti farið að taka til ísinn handa mér og stráknum.
    Jamm, jólin koma bráðum.


Skítapakk

Í vikunni kom bæklingur frá BT til okkar  og sá drengurinn þar auglýst enn eitt falstilboð þar.Undanfarin ár hef ég þurft að dröslast með honum þegar þetta pakk auglýsir "stórkostlegar útsölur" og er hann rétt að fatta núna að svona fyrirtæki gefa aldrei neitt.Á þessum svokölluðu útsölum hefur aldrei neitt verið keypt því að meira segja hann sér hverskonar drasl fyrirtækið er að losa sig við reglulega. En í dag átti að fara fram einhverskonar kappát og áttu allir sem að tóku þátt að fá "glæsilega Simpsons vinninga"  sem að var náttúrulega beitan til að fá sem flesta í Smáralindarbúðina. Það var margt ungmennið sem að beið lengi til að fá að taka þátt. En því miður ,sagði verslunarstjórinn síðar, þegar að var fundið að það hefði "gleymst" að taka fram í auglýsingunni að bara tíu fengju að spreyta sig og að þeir yrðu ekki valdir eftir röð. Svona framkoma við fjölda ungmenna er leiðinleg og óþörf en samt eitthvað sem maður býst við af fyrirtæki sem að er andlitslaust. Andlitslaust fyrirtæki er það fyrirtæki sem hefur enga sjáanlega eigendur og eru yfirleitt láglaunaðir krakkagemlingar þar í vinnu sem að ekkert mega gera annað en að taka við peningum og segja "ég bara vinn hér". Það var nú engin sérstök sorg hjá mínum yfir málalokum en ekki var svo hjá öllum þarna. En er eitthvað skrýtið að drengurinn læri hjá mér orð eins og "skítapakk" eftir svona leiðindi?

Jólalag

Það er byrjað. Það er fyrsti desember í dag og það er eins og að það sé skylda hjá útvarpsstöðvum þ.e. stjórnendum þátta þar, að byrja að spila jólalög. Flest þessara jólalaga erum við öll búin að heyra oft og erum orðin hundleið á þeim. Og ekki verða þau skemmtilegri eftir því sem að líður á. Ég hugsa oft , og ekki bara á þessum tíma árs, þegar ég er að keyra um á nóttunni, hlustandi á útvarp þar sem enginn er stjórnandinn gjammandi, hve gott er að hafa útvarp þar sem eingöngu er spiluð tónlist. Það mættu vera fleiri stöðvar sem Rondó 87.7, þar eru ekki þessi  orðskrípi og orðfæð sem að einkennir "lala" stöðvarnar, sem að eru í boði........

Horgemlingur

Hún er nú ekki neitt sérstök í fötum blessunin en illt yrði manni í auga að sjá hana nakta.Svona horgemlingsskjátur voru ekki á vetur settar þar sem ég var í sveit.
mbl.is Viktoría situr fyrir nakin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opnunartilboð

Jæja, þá er maður búinn að skoða nýja Hagkaup. Má helst ekki seinna vera að mati sambýliskonunnar.Það var tekinn skemmri rúnturinn svona í fyrsta sinn og lítið keypt að sinni. Konan skildi t.d. ekki af hverju ég vildi ekki kaupa 8 lítra af kók light á 199 eða 10 pakka af kókópuffs á 990 og þurfti ég að minna hana á að hvorki við né neinn sem að við þekkjum drekkur kók light. "Já ég veit en þetta er svo ódýrt" sagði hún með tilboðsglampa í augum. Það var fullt af tilboðum þarna á "bráðnauðsynlegum" hlutum sem að hún getur skoðað seinna,ég er vanur að skutla henni á svona staði og sækja svo síðar þegar hringt er. En eflaust er þetta bráðhugguleg búð og verður þokkalegt að fara og skoða hana þegar allt verður búið, það er nefnilega þarna eins og alltaf er á Íslandi, "við opnum 28 nóvember", hvort sem allt er tilbúið eða ekki. Og sýndist mér margt vera óklárað og ófrágengið. Ekki sá ég "kjánaholuna" þar sem á að sýna fótbolta fyrir eiginmennina. Einkennileg árátta að halda að allir karlmenn hafi gaman að fótbolta, sumir þeirra hugsa. 
   En víst er að svona verslun bráðvantaði á svæðið.


Gáfulegt?

Búast landsmenn virkilega  við einhverju gáfulegu frá blessuðum þingmanninum?
mbl.is Ekki meira blátt og bleikt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að tala við Guð

Ég er að skoða nokkrar bækur núna, það er að segja þessar göfugu. Er ekki alveg byrjaður að lesa "Að pína fisk og sleppa er að tala við Guð" en hún lofar góðu því að í lesbókinni um daginn var minnst á Moby Dick eftir Herman Melville og Gamla manninn og hafið eftir Ernest Hemmingway í sömu andrá. Það skyldi þó aldrei vera að Nóbelinn væri aftur á leiðinni hingað?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband