Færsluflokkur: Bloggar
3.10.2007 | 21:12
Til hamingju
Til hamingju með þetta. Maður skilur svona upphæð og kannski veltir sér uppúr því hve gaman væri að eiga 100 millur eða bara fimm. En Björgólfur var að leysa út hagnað um daginn uppá tæpa 12 milljarða, svoleiðis upphæð er svo fjarri raunveruleikanum að það hreyfir ekki við manni. 105 millur er flottara.
![]() |
Íslendingur vann 105 milljónir í Víkingalottói |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2007 | 11:22
Hrukkur
Jamm, ekkert verið bloggað um tíma. það er búið að vera leiðindaveður uppá síðkastið og verður líklega áfram um tíma. Ég var að spá í hrukkur og er búinn að fatta hvernig á að losna við þær. Byrja á að hætta reykingum.Svo eru íspinnar, kók og nammi, málið. Ef að maður borðar þokkalega mikið af þessu drasli, til viðbótar kótelettum í raspi með frönskum og þessháttar fæði, þá teygist svo á húðinni að ekki sést ein einasta hrukka. Ég var að leita og fann ekki eina einustu, getur reyndar verið þarna niðri, ég sé ekki allt svæðið þar. En ég mæli með þessu, þetta gefur líka tilefni til að endurnýja skyrtulagerinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2007 | 19:31
Bla bla í New York
Alveg er ég viss um að herforingjastjórnin í Myanmar lætur af öllu ofbeldi hið fyrsta, eftir að ISG flutti harðorða ræðu hjá Sameinuðu þjóðunum,um hvað henni þætti slæmt ástandið þar. Það er að segja þegar verður búið að snara ræðunni fyrir þá frá útspýttu "íslenskrastjórmálamannaenskulíki" að skiljanlegri ensku. Reyndar held ég að meiri athygli hefði vakið ef að Britney Spears hefði skammað þá sem eru að buffa munkana.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.9.2007 | 13:02
Fífl.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2007 | 09:09
Töffari
Nú já. Maður er svo sem töffari líka, reyndar óbrákaður og Sörulaus.
![]() |
Clooney og unnusta hans slösuðust í bifhjólaslysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2007 | 07:42
Mér verður óglatt.
![]() |
Það stjórnar enginn kónginum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.9.2007 | 21:56
Karamellur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2007 | 17:33
Er allt í lagi?
Hvers konar fíflagangur er þetta? Það er látið eins og allt sé í lagi ef að enginn íslendingur hafi verið um borð. "Þetta voru bara útlendingar". Svona slys eru hræðileg hvort sem einhver íslendingur hafi með eða ekki.
![]() |
Ekki vitað til þess að Íslendingar hafi verið í flugvél sem fórst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.9.2007 | 20:08
ARON PÁLMI Á FERÐINNI
Eg var að sjá Í DV að Aron Pálmi hafi verið austur á Litla Hrauni að kynna sér aðstæður þar. Er hann á leiðinni þangað í vist? Mig langar til að vita hvað er í gangi?
Er hann einhver sérfræðingur í amerískum fangelsum umfram einhvern annan hér, þótt hann hafi verið í stofufangelsi í Texas, það eru 49 önnur ríki í USA. Afhverju fær hann aðgang að Hrauninu? Er Juvenile Justice System, þar sem hann segist vera forsvarsmaður fyrir með starfsemi hér? Skyldi ég og félagar mínir fá að skoða þarna? Eru hópferðir austur til að skoða? Er boðið uppá pönnsur?
Svo er annað mál.Hver segir að fangar eigi að hafa það gott? Það blossar upp þjóðerniskennd hjá bónusheilunum þegar þeir heyra að íslensk fangelsi eru betri en annars staðar, að mati tugthúslima sem þekkja til en þegar einhver fremur glæp gagnvart einhverjum þeirra nákomnum þá eru íslensk fangelsi alltof góð, "láta þessa andskota sofa á gólfinu" og annað eftir því. Þá er ekki fyrir þjóðerniskenndinni að fara.
Er ekki kominn tími til að skoða okkar gang?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.9.2007 | 09:04
8 mánuðir
Á Florida skín sólin 340 daga á ári og eitthvað er veðurlag svipað á Kanaríeyjum. Við þurfum bara að bíða í átta mánuði núna eftir að veður verði skaplegt hér aftur. Það eru 240 dagar. Er ekki hægt að flýta þessum gróðurhúsaáhrifum?, það er leitt að vera dauður þegar loks verður orðið búandi hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)