Færsluflokkur: Bloggar

Hopla paa sengekanten

Ég var að sjá þátt í sjónvarpinu um heilsu og hvað hægt er að gera til að halda henni sem lengst. Spínat á að borða til að sjá lengur og ekki gengur að fara á einhvern afeitrunarkúr til að grenna sig. En ég sé hjartaáfallið í fyllingu tímans því ekki má ég þamba rauðvínið eins og fransarar gera sér til langlífis. Skaði.

Kviknaktar kellingar.

Hvað er að gerast? Nú hefur ekki verið bloggað um sinn, kannski væri best að taka sig aðeins á, þó ekki væri nema til að æfa þriggja fingrasetninguna. Aldrei held ég samt að ég verði ofurbloggari sem margir aðrir á þessu sviði.Ég er ekki nógu gáfaður til að geta það eins og t.d. þessi, eða veður glöggur og þessi og ekki er ég vinstri sinnuð rörsýniskelling eins og þessi, en ég er reyndar þurr eins og þessi. Þetta fólk er allt gott fyrir sinn hatt og skoða ég oft blogg þeirra, þó ekki líki mér allt sem þar er. Fyrrnefndir hlekkir eru allir mikið skoðaðir og þarf það ekki endilega að vera merki um gáfuleg skrif. Stundum athuga ég þá bara til að sjá hvers konar bull er í gangi þann daginn. En eitt hefur þetta fólk sameiginlegt á sínu bloggi og þar er samþykktarkórinn : "Þetta er alveg rétt hjá þér Jens", "góður punktur hjá þér" og "þú ert alveg rétta manneskjan í þetta" sást í einni athugasemd hjá einum af fyrrnefndum. Það er allt já fólkið sem skrifar hrifningarathugasemdir og heldur ekki vatni yfir því hvað bloggvinurinn er sniðugur.  

Ég gleymdi þessum, hann var lipur skrifari áður en bloggið kom til og er enn og hægt er að taka mark á honum.
Jæja, konan búin að láta renna í baðið,meira seinna.


Afmæli

Til hamingju með daginn Alla.
Hún systir mín á afmæli í dag og er töluvert yngri en ég. Við erum yngst.


Sauðir

Ætlar fólk aldrei að fatta þetta: við erum íslendingar og getum lítið í samanburði við aðrar þjóðir,alveg sama á hvaða sviði,nema sauðshætti. Við, íslendingar, erum ekkert sérstakir,síður en svo.
mbl.is Ljótur skellur Íslands í Liechtenstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yakety yak

Sumir bloggarar halda ekki vatni yfir stjórnmálahæfileikum þessarar Svandísar án þess að eitthvað hafi á hana reynt. Eftir því sem fólk er vitlausara þeim mun auðveldarar er að koma á múgsefjun. Pólitík er nefnilega fleira en einhver félagsmálapakki sem róar atvinnulausa og pólitik er líka eitthvað annað en leikskólar,skyldi kaupið ekki hækka þar eftir helgina? Hefur fólk alveg gleymt hverra manna stúlkan er. Vitum við nokkuð nema hún hafi lært að vera hávær "spraðurbassi"  eins og hennar kyn er til. Það þýðir ekkert að láta eins og bytta nýkomin af Vogi, á bleiku skýi óraunveruleikans og gapa af hrifningu yfir því að stúlkukindin er með munninn fyrir neðan nefið. Það var Erich Honecker líka og ekki allt gáfulegt sem þaðan kom.
mbl.is Vinstri grænir ræða um nýjan meirihluta í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær kemur Stefán?

Hvenær kemur Stefán Jón heim? Nú eru vindlarnir komnir í meirihluta og þá vill hann örugglega fá að vera með. Það er ekkert varið í að vera í minnihluta, þá fær maður bara leyfi.

( Vindlar=vinstri dindlar)


mbl.is Víða fundahöld um nýjan meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög slæmt.

Á að þurfa þola þetta aftur, yfirmáta sjálfsánægðan vinstri mann í forsvari fyrir Reykjavík? En hvað með það, nú verður allt hvítþvegið og vansalaust að hætti kommanna, ekki kusk á hvítflibbann þar.
mbl.is Nýr meirihluti myndaður í borgarstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað

Auðvitað þarf flýtimeðferð í þessu máli, ef að hún kæmi ekki til væru allir búnir að gleyma þessu máli þegar úrskurður fæst og um hvað það var. Eins og alltaf er hjá heimskum íslendingum, sem hoppa um, hamast og góla efað allt er ekki eftir þeirra höfði. Og eru svo búnir að gleyma öllu eftir fjóra daga.
mbl.is Ósk um flýtimeðferð í máli Svandísar samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reyklaus

 

Það eru sex mánuðir í dag síðan ég var nær dauða en lífi. Ég var svo ofboðslega veikur  að erfitt er að trúa. Allir aðrir hefðu drepist, jafnveikir og ég var þarna. En ég var snöggur að ná þessu úr mér en  missti um leið löngunina til að reykja, eftir 39 ár. Þegar ég var búinn að slóra í rúminu í sólahring , hafandi smá tíma til að hugsa í mókinu, þá tók ég þá ákvörðun að hætta. Þannig að á morgun er hálft ár síðan að maður púaði síðast. Þetta hefur ekki verið nein sérstök raun, en ekki er hægt að neita því að stundum hefur mann langað í eina rettu. En reynsla annarra hefur sýnt mér að ein er of mikið og pakki of lítið. Alveg eins og með brennivínið. Ekki get ég sagt að ég sé alveg sáttur en ég verð að vera það. Það er nefnilega ansi skítt að reyna að ná efri árum en hafa svo ekki lungu til að njóta þeirra. Tankvæddur nenni ég varla að ganga um ef að ég get komist hjá því.

Það sem maður getur, má ekki og það sem má, getur maður ekki.


Afmæli

Til hamingju með afmælið Helga Dögg.

Við erum tuttugu og fjögurra ára, hún Helga Dögg og ég. Það eru 24 á síðan hún fæddist og ég varð pabbi, við erum því jafnaldra.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband