Færsluflokkur: Bloggar
19.1.2007 | 12:24
Helreiðin
Helreiðin.
Ég keyri tuttugu km. á morgnana til vinnu. Fyrst úr Breiðholti út á Granda og svo í vesturbæ Kópavogs.
Og á hverjum morgni er þetta barátta við fólk sem er ekki alveg með hugann við akstur eða hreinlega ekki vaknað. Ek ég sem leið liggur niður Breiðholtsbraut og þá byrjar ballið. Flestir sem beygja til hægri niður á Reykjanesbraut nota vinstri akrein. Svo halda þeir áfram, hægt, á vinstri akrein alla leið vesturúr af því þeir ætla að beygja til vinstri upp Ægisgötu. Þar sem mér leiðist hjarðmenning, ek ég í flestum tilvikum hraðar en aðrir og því þvælast þessir bjálfar fyrir mér og reyndar eru þetta flesta morgna sama fólkið. Ekki er ég í tímaþröng á þessum tíma en finnst sjálfskipaðir hraðahemlar ekki til bóta í umferðinni. Nota ég óspart lýsingarorð eins og t.d. "fíbbl", kelling og fæ eflaust "ökuníðingur" í bakið þegar ég loks kemst framúr. Ég vil nú ekki kannast við að ég sé ökuníðingur þó að ég keyri stundum hraðar en aðrir. En ég er með hliðar- og baksýnisspegla og nota þá sem og stefnuljós og þvælist ekki fyrir öðrum sem vilja keyra hraðar en ég. Ég þakka mínum sæla að ég er ekki á ferðinni á milli 8 og 9.
Það er líklega rétt hjá lögganum sem sagði eitthvað á þessa leið: það eru ökumenn sjálfir sem eru valdir að umferðartöfum. Skarplega athugað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2007 | 12:56
When in Rome...
When in Rome do as the Romans.
Það var einhver gutti, sem mætti í fyrra bindislaus á fund í Alþingi. Í ár bætti hann um betur og mætti með hauskúpubindi, áritaðan jakka og annað var álíka kjánalegt. Er nema von að fólk beri ekki virðingu fyrir alþingismönnum ef að svona skoffín komast þarna inn. Kannski að honum finnist þetta fyndið. Ekki finnst mér það. Kannski að það breiði yfir málefnafátækt að vekja athygli á einhverju öðru.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2007 | 09:30
Snillingur
Gúmoren.
Maður hefur nú púað nokkrar rettur um ævina en aldrei lent í þessu. Ég vil endilega fá mynd þegar svona snillingar eru annars vegar.
![]() |
Hellti úr bensínbrúsa með logandi sígarettu í munninum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2007 | 21:42
Byrjun
Gúmoren.
Þetta er víst málið, að blogga. Það virðist enginn maður með mönnum nema að hann bloggi.Hér geysast fram menn úr öllum áttum, háir og lágir og sýnist mér að nóg sé að eiga tölvu og kunna á lyklaborðið.Hef ég verið að skoða þetta undanfarið eilítið og finnst mér vel um. Eigi býst ég við að þessi orð verði lesin af svo mörgum, svo sem blogg meiri spámanna. En það gildir einu mín vegna. Hér er ýmislegt að huga að, eins og útlit síðu,innsetning mynda og fleira. En það bíður allt betri tíma,því það er eins með þetta og annað, það þarf að læra að fara hér um.
En hér virðist vera hægt að skrifa um það sem manni dettur í hug. Nú þarf ég ekki að hringja lengur á Sögu í kellingavælsþáttinn og gráta þar örlög mín og smjatta á óförum annarra. Ég get skrifað um mig, kunningja mína, mótorhjólið og líklega hvað sem mér dettur í hug. Eins og t.d. arkarkjánann sem byrjaður er að blogga um að allir sem eru ekki á móti virkjunum séu með dollaramerki í augum. Ég er nú ekki á móti virkjunum en ég er bara með augasteina og gleraugu þar fyrir utan. En ég ætla ekki að skrifa neitt um það núna.
P.S. Ég var að spá í þessar flugvélar, Cessena,Fokker, Boeing og hvað þær heita nú allar. Eru þær ekki að mestu úr áli?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2007 | 21:10
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)