Færsluflokkur: Bloggar

Bjóst einhver við sigri?

 

Ég hef nú ekki vit á handbolta en eins og ég hef minnst á áður finnst mér allt þetta "havarí" út af þessu, með eindæmum kjánalegt. Íslendingar hafa aldrei unnið til verðlauna í handbolta í alvörukeppni. Og munu ekki gera. Einu sinni unnu þeir einhverja B keppni en það var af því að þeir duttu úr A keppninni. Ekki að þeir reyni ekki en þeir eru bara ekki nógu góðir. Með þessum orðum er ég ekki að gera lítið úr okkar mönnum heldur að reyna að benda á sjálfsánægju Íslendinga, sem brýst út þegar reynt er að breiða yfir minnimáttarkenndina. Handbolti er að vísu eitt af því fáa á íþróttasviðinu þar sem við komumst með tærnar þar sem hinir eru með hælana. En framar komumst við ekki. Sættið ykkur við það. Eins og ég sagði fyrr: við erum ekkert "spes".

P.S. Var ekki að vinnast titill í badminton um daginn?


mbl.is Draumurinn úti í Hamborg - Danir sigruðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigur?

Hélt fólk virkilega að þetta myndi vinnast þó slysasigur hefði hafst á móti Frökkum? Og annað rétt marið. Ath. við erum bara Íslendingar og erum ekkert "spes"


mbl.is Ólafur: „Mætum brjálaðir til leiks“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kolaportið

 

Gúmoren.

Ég skrapp í Kolaportið í dag með konuna. Þegar svo er þá kíki ég yfirleitt í kaffi á meðan, því ekki vantar mig neitt þar. Það er ætíð líflegt á kaffistofunni og mannfólksins úrval má sjá þar. Finnst mér gaman að sitja þarna og virða fyrir mér mannlífið og kannski hitta einhvern sem ég kannast við. Upp úr kl. hálf tvö sá ég að maður var að stússast í hljóðfærum þarna og þekkti þar Þorvald Halldórsson. Fann ég fljótt að eitthvað var í vændum og heyrði svo að það væri eins konar helgistund með presti og alles. Þar sem ég hafði ekki verið þarna áður við svona athöfn , þá sat ég áfram.Í forspili athafnar spilaði Þorvaldur og söng. Byrjaði á "Á sjó", svo "Hún er svo sæt" og " Suður um höfin". Þetta var mér nýtt, þar sem ég hef í huga mér prelúdíur og fúgur við helgiathafnir. En Þorvaldur skilaði þessu vel enda vanur maður og klukkan tvö tóku prestarnir Þorvaldur Víðir og Ragnheiður Sverrisdóttir við. Ragnheiður prédikaði og farið var með fyrirbænir, sem hafði fyrir athöfn verið spurt um hjá kaffigestum. Það sem ég er ekki kirkjurækinn og fer þar sjaldan, þá fannst mér skrýtið að sitja með kaffi og sígó og hlusta á séra Þorvald Víði tala um "þetta helga samfélag í litskrúðugu umhverfi" og fleira. Mér leið bara ágætlega þarna er Þorvaldur hinn söng og spilaði gleðisálma milli atriða. Rétt áður en ég fór kom séra Ragnheiður og smurði mér í lófa og blessaði. Þetta var ágæt eftirmiðdagsstund og er ég ekki frá því að ég hafi farið betri út.


Nagladekk!!!!

Það eru líklega margir sem lesa þessa frétt með morgunkaffinu og skreppa svo eftir hádegið á sunnudagsrúntinn með blessuð litlu börnin sín,rífandi upp malbik um leið og tekið er af stað, á "bráðnauðsynlegum" nagladekkjum.


mbl.is Svifrykið skemmir lungu barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blogg

Gúmoren.

Það er gaman að sjá hvað er að gerast hér á þessu bloggi.is. Það er um sex þúsund manns skráðir hér. Menn skrá sig hér inn og byrja að skrifa. Skrifa um pólitík eins og margir gera,sjálfan sig eða bara það sem þeir eru að gera þann daginn. Menn eru misjafnlega virkir og þessir alhörðustu eru að fá yfir tvö þúsund innlit á dag. Það virðist líka að slíkir séu ekki að vinna neitt, svo er atgangurinn mikill. Þetta er kannski ritræpa og tjáningarfíkn en það er bara gaman að þessu. Ég kemst stundum ekki yfir að lesa blöðin, því svo mikið er skrifað hér sem þarf að fylgjast með.  Hvert úthaldið verður hjá mér sem öðrum leiðir tíminn einn í ljós. Ég á nefnilega eftir að skrifa dálítið um pólitík og pólitíkusa en er enn að leita eftir einhverju merkilegu sem kemur úr þeirri áttinni. Það er vandfundið


Helga Dögg

 

Gúmoren.

Ég er dálítið montinn núna. Meira en vanalega. Dóttir mín er í Háskóla Reykjavíkur og stundar þar nám af kappi eins og vera ber. Svo hljóta og samnemendur hennar að gera. En eitthvað virðist vera betur gert hjá henni en þeim flestum því að í dag var tilkynnt þar á bæ að hún væri á svokölluðum forsetalista og það í þriðja sinn. Á þennan lista komast eingöngu þeir nemendur sem að standa sig vel og fá þeir einhverja umbun fyrir.

Til hamingju Helga Dögg.

http://ru.is/?PageID=155


Múgæði

 

Gúmoren.

Mikill andskotans fýlupúki getur maður verið.

 Ég hef verið að hitta fólk síðan þessi leikur við Frakka var í fyrradag. "Hvernig fannst þér leikurinn ?" er spurningin. Það er ekki spurt "sástu leikinn?". Heldur er gengið út frá því að allir horfi á handboltaleik sem engu máli skiptir. Ég hef ekki getað séð í gegnum tíðina að tap eða sigur í boltaleik skipti einhverju máli. Nema fyrir leikmenn sjálfa og þá í sambandi við laun, því þetta er jú þeirra vinna og standi þeir sig vel þá skiptir það máli. En fyrir aðra hefur þetta ekkert segja. Fyrir mér er þetta múgæði, sem virðist geta breytt dagfarsprúðu fólki í hálfgerða kjána eins og mátti sjá á Stöð 2 í gærkvöldi. Múgæði hefur fylgt okkur alla tíð og skapast um menn og atburði eins og sagan sýnir : Mussolini, Hitler, Chaves, og hérlendis: peningasöfnun, einu nafni nefnd: "Við erum svo góð", Ómar, handbolti og fleira. Ef að fólk vill gera sig opinberlega að kjánum þá er það mér að meinalausu. Ég ætla að vera fýlupúki áfram.

 

 

sjá:

http://orkovan.blog.is/blog/orkovan/?nc=1#entry-107459


Ekki búið enn

 

Gúmoren.

Ísland vann Frakkland í handboltaleik.

 Hann er kominn aftur, þjóðarrembingurinn. Ég ætlaði að kíkja á síðustu mínútur leiksins í gærkvöldi og stillti RUV. Var ekki alveg klár á tímanum og sá þegar ég kveikti að liðnar voru 45 mínútur af leiknum. Alveg að verða búið, kannski er framlenging um eina eða tvær mín. Ég er ekki alveg klár á tímalengd svona leikja. 10 marka munur okkur í hag, ekki slæmt. Ég horfði um stund og þegar 48 mín. eru liðnar þá áttaði ég mig á að þetta var leikur sem tekur 60 mínútur. Ég skipti um rás og ákvað að líta síðar á lokamínútur. Boltaíþróttir eru nefnilega ekki merkilegar að mínu mati. Mér hefur alltaf þótt múgsefjun leiðinleg. En ég skipti yfir aftur og enn voru "strákarnir okkar" yfir og útséð um að maður fengi afsökunarfyrirsagnir í blöðum í dag. Mitt íslenska hjarta, fullt af stolti, sló í takt við hjörtu áhorfenda, sem sungu hið þjóðlega:OLE, OLE, OLE, OLE. Ég hef reyndar aldrei skilið hvað vinsæl norsk og dönsk mannanöfn hafa með hvatningu á boltaleikjum að gera. Ég heyrði þetta ÓLE fyrst á nautaati á Mallorka árið 1967, en það var út af einhverju öðru. Eins finnst mér gaman að heyra kraftmikla hvatningu eins og: "og koma svo ". En ég bara veit ekki hvert á að koma, enda er ég ekki boltaaðdáandi. En "strákarnir okkar" unnu og slá fréttir af því á annað nöldur, sem ofarlega hefur verið á baugi

Íslendingar

 

Það er einkennilegt hvað sumir halda að Ísland og Íslendingar séu merkilegir á alþjóðavettvangi. Eg hef aldrei skilið þessa stórmennsku.    (Rumsfeld:Heyrðu Bush, við getum ekki ráðist inn í Írak,Íslendingar eru á móti því. Bush: Ha, Ísland hvað er það?)

Ég get ekki séð hvort nokkru hefði breytt um gang mála hvort við hefðum verið með eða á móti innrásinni í Írak. Það er eins og sumir bloggarar séu að kenna mér um að einhverjir kuflklæddir múslimir séu sprengdir í loft upp, reyndar mest af samtrúuðum. Ég hef bara ekkert með það að gera. Ég var ekki með aðild og ekki á móti. Ég var með fólk í að taka þá ákvörðun á sínum tíma, sem eflaust hefur tekið ákvörðun samkvæmt sinni sannfæringu og í ljósi þeirra staðreynda er lágu fyrir á þeim tíma. Skákdrottingin okkar er nú í framboði og þá er öllu til tjaldað í málflutingi. Er hún bara ein af þeim er láta sem að þetta sé mér að kenna. Það er til fleira en svart og hvítt og að vera með eða á móti. Hvenær ætlar fólk að skilja að Íslendingar eru bara peð?


Launalaust leyfi?

Getur einhver útskýrt fyrir mér hversvegna hann ætti að fá launalaust leyfi?
mbl.is SA lýsa yfir óánægju með að Ágústi Einarssyni sé synjað um launalaust leyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband