21.11.2008 | 09:26
Hlutdrægur?
Ég held að ég hafi heyrt höfundinn segja að hann væri ekki "hlutdrægur" við ritun þessarar bókar.Hann talaði í fimmtán til tuttugu stundir við Ólaf Ragnar og skrapp til London til að tala við Dorrit, sem minnst er á jafn oft og Davíð Oddsson í ágripi bókarinnar.Þó Davíð eigi kannski upp á pallborðið hjá þjóðinni sem stendur, þá er hann það stór hluti af þessari bók að ekki hefði verið vitlaust að ræða í smátíma við hann.En það hefði kannski ekki verið gott í lofræðunni.
Tjái mig ekki um einstök efnisatriði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta var þá líka tíminn að gefa út bók með skítkasti á menn sem öll þjóðin veit að hafa aldrei þolað hvorn annan.
Rannveig H, 21.11.2008 kl. 14:53
Gaman að sjá þig LR.
Yngvi Högnason, 21.11.2008 kl. 15:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.