Minnimáttar?

Skyldi vera hægt að fá mat þarna líka?
   Á aldrei að linna þessari glýju fólks þegar eitthvað íslenskt er á boðstólum annars staðar en hér? Er ritað í erlenda miðla að enskur klósettpappír sé seldur á Íslandi? Eða súrar gúrkur frá Póllandi? Ég get ekki séð það merkilegt þó takist að pranga nokkrum skyrdollum til útlanda. Það verður kannski aldrei sem fólk hér áttar sig á því að íslendingar eru ekkert sérstakir.
mbl.is Íslenskt skyr í boði hjá heimsfrægu veitingahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Ég sá einu sinni þjóðverja í verslun, þeir hlógu ógurlega, því þarna var hægt að kaupa þýsk eldhúsáhöld. Það hefur örugglega ekki verið auglýst í þýskum blöðum að LEIFHEIT sendi ostaskera og dósaupptakara til íslands.

Marta Gunnarsdóttir, 24.4.2009 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband