Færsluflokkur: Bloggar
27.11.2007 | 07:19
Hjá Agli
![]() |
Konur sniðganga Silfrið í mótmælaskyni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.11.2007 | 05:09
Bókin hans Guðna
Ég keypti tvær bækur eftir afa minn,sem að dó fyrir þrjátíu og þremur árum, í Kolaportinu um daginn á fimmhundruðkall hvora. Ég hafði beðið um tíma eftir að þær væru til. Önnur þeirra var árituð af höfundi. Ég ætla kaupa bókina hans Guðna í mars n.k. , líka í Kolaportinu á fimmhundruðkall og þá vel ég bara hvort ég vil hafa hana áritaða eða ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.11.2007 | 20:22
Á tali
![]() |
Björk vill fólk en ekki farsíma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.11.2007 | 20:51
Ofleikur
Ég er að passa fyrir konuna mína fyrrverandi og hefur drengurinn verið hjá mér að undanförnu. Það breytist ýmislegt þegar hann er hér og þar á meðal hvað horft er á í sjónvarpinu. Núna var Næturvaktin á Stöð 2 að renna í gegn, mér til ama vegna þess að íslenskt efni er að öllu jöfnu mjög leiðinlegt vegna ofleiks og er þessi Næturvakt þar engin undantekning. Ég hef aldrei skilið íslenska tómheila sem að finnst Jón Gnarr fyndinn og hef ég á tilfinningunni að þeir séu, þegar íslenskt efni er annars vegar daufdumbir. Eða að kröfurnar um að leikið efni séu ekki meiri en þær að bara sé talað á íslensku. Leikhæfileikar virðast ekki skipta neinu máli. Íslenskir leikarar myndu líklega vera á Englandi kallaðir fimmta flokks eða bara nothæfir sem galarar í sirkus.
Ég skil ekkert í Björgólfi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.11.2007 | 07:47
Biskupinn laminn?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.11.2007 | 08:35
Bloggið
Sigurður Þór Guðjónsson sagði um daginn að bloggið væri botnfall mannlífsins. Það má vel vera en bloggið hefur virkað vel hjá mér. Ekki að ég sé að skrifa eitthvað svo merkilegt eða innihaldsríkt heldur hefur bloggið virkað sem þrýstiventill á nöldrið í mér.Virðist mér að svo sé um fleiri sem að blogga. Samstarfskona mín segir að ég sé mikið meðfærilegri og skapbetri eftir að ég fór að blogga. Sumir virðast mér vera að blogga úr sér nöldrið en finnst ekki nóg að gert og hringja þá í útvarp Sögu og fá útrás þar líka. Það eru ofurnöldrararnir. En þeir sem að koma með athugasemdir á vinablogg sín eru sér kapítuli og er ég enn að skoða þann jákór og er erfitt að sjá hvað honum gengur til, en hjá ölkunum kallast svoleiðis fólk "kóarar". Fólk sem að sér ekkert gagnrýni vert og jarmar sem lamb að móður í vinadálkana.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.11.2007 | 09:19
Æ Æ Æ
Ég nennti ekki að blogga í gær vegna þess að mér var svo illt í hnénu. En ég sé í dag að það er léleg afsökun. Það er fullt af fólki sem að gengur um með hálfan heila eins og konan í Kína og bloggar það og hrópar húrra fyrir hálfvitaskap fólks sem á að vera vinna en bullar bara af því að það er með hálfan heila eða þaðan af minni. Ég hef ekki vottorð um fulla stærð á heila í mér en það er nokkuð líklegt að hann sé heill því að ég er ekki vinstri grænn eða annars konar kommi.
Ég er bara orðinn nokkuð góður í hnénu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2007 | 11:32
Mannvonska
![]() |
Íhugar að flytja til Danmerkur vegna banns við snáknum á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.11.2007 | 20:16
Finnur
Ég var að horfa á þátt sem Sigmundur Ernir andstutti sér um. Mér finnst hann alltaf kjánalegur í sínum alvarleika og hann talar alltaf eins og hann sé að segja frá Ragnarökum. En þarna var hann að tala við Finn Ingólfsson. Mér þótti Finnur afar fræðandi og sagði svo við sambýliskonuna: Mikið held ég að þetta sé góður maður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.11.2007 | 19:28
Jónas hvað?
Ég er orðinn hundleiður á þessum ofleik.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)