Færsluflokkur: Bloggar

Frekja

Það er greinilegt að þeir vita ekki af manni.....


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morgunkaffi

 

Kunningi minn kemur oft í morgunkaffi til mín og ræðum við málin á alvarlegum nótum yfir bolla af venjulegu kaffi. Og oftar en ekki þá leysum við dægurmálin hraðar en að þau koma upp. Eftir margra ára morgunsamveru erum við orðnir nokkuð flinkir við lausn mála og kemur það til af því hvað við erum sammála um flesta hluti. Reyndar á hann það til að ræða um hitt og þetta sem er að gerast í Hafnarfirði og þá segi ég bara já og amen.Hann heldur nefnilega að Hafnarfjörður sé eitthvað númer. Eins er það með hann, að þegar ég segi eitthvað gáfulegt sem að hann ekki skilur, þá segir hann já og amen. Þetta er gagnkvæm kurteisi, sem að kemur með árunum.
  Eins og hjá gömlum köllum.


Smáborgarar.

 

Heyrðu!
  Nú er þessi Edduhátíð að baki og menn lausir við það kjaftæði um sinn. Ef að þær myndir,þeir þættir og þeir leikarar sem að fengu verðlaun að þessu sinni, er það besta sem að boðið uppá hér,  þá eru kröfur íslendinga til kvikmynda og leikara ekki háar. Í raun og veru eru kröfurnar engar, bara að það sé íslenskt og þá er allt í lagi, hversu lélegt og leiðinlegt sem það er. Og sérstaklega er athyglivert að sú mynd, sem að pupullinn nennti að sjá og borga sig inná(Astrópía) var ekki með hjá snobbpakkinu.


Aðgát skal .....

 

Það var í morgun að ég setti inn athugasemd á blogg hjá einhverri spritthænu sem heldur að maður verði ofurgóður við það að láta renna af sér. Hún var með mikla hneykslun á sjónvarpsmynd sem var sýnd kvöldið áður og var um fanga í  Guantanamo. Það er alltaf skondið að lesa og heyra fólk, (sem allt að því gumar af neyslu fyrri daga og er búið að gleyma því þegar það hélt sjálfum sér og sínum nánustu í fangelsi sem aðstandendum og pyntaði þá andlega í sinni vímuleit) sem álítur sig vera bjargvætt í heiminum með því að hneykslast á því sem ekki er alveg að þeirra skapi. Og ef einhver dirfist að vera ekki alveg sammála þá er hann bannfærður og jákórinn tekur undir og segir skamm líka. Jamm, ég gerði þá firru að koma með tvíræða athugasemd inn á bloggsíðu án þess að vera í jákórnum. Reyndar var þetta með jákórinn misskilið og kannaðist konan ekki neitt við kórinn þann. En sá kór kemur víða við í athugasemdum hér á blogginu og er á þessa leið: Ég er 105 % sammála þér-, gargandi snilld bloggsins hér-, tær snilld-, ég er svo sammála þér-,og svo allir bjánalegu svipbrigðahausarnir sem til áréttingar fylgja hjá þessum kór. En kannski má ég ekki kalla fólk hér spritthænur eða annað álíka en þetta er bara svona. Á maður kannski að segja  núna "úje" ?


Vöggur

"Litlu verður Vöggur feginn" er mín skoðun á þessari könnun. Ef að "hvalaveinararnir" með sínar lagleysur, þó að vel séu spilaðar, eru settir í fyrsta sæti í þessari könnun þá er hún jafnmarktæk og kosningar í arabaríki. 


mbl.is Ágætis byrjun er besta íslenska platan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvenhylli

 

Ég hef allaf verið mikið kvennagull og liðið bara vel með það. Eða það mætti ætla af kynnum mínum við konur því þegar þær sjá mig  þá kikna þær allar í hnjáliðum. Ég hef alltaf verið ánægður með þetta en í gær var sáð fræjum vafa í huga mér. Samstarfskona mín hefur sérkennilegan húmor og sagði að þær kiknuðu ekki í hnjáliðum við að sjá mig, heldur væru þær að lækka sig  til þess að heilsa mér: "Sæll litli kall".
  Hvað ætli hún viti svo sem?

 


Jólaskraut

 

Það er yfirleitt IKEA sem er fyrst með jólaskrautið. En fyrir tveimur árum sló ég þeim við. Ég fékk mér límbyssu og límdi seríurnar fastar í gluggana og tók júðaljósin ekki niður og lét þetta standa ókveikt. Svo set ég  bara í samband innan tíðar og lýsi upp. Og núna lendi ég ekki í neinu suði með uppsetningu á þessu dóti.
  IKEA hvað?


Hver sem er.

Það var einhver gella með þátt á rás 1 áðan og það lak af henni umhverfisheilagleikinn og endurvinnsluslepjan í stríðum straum. Ljósadíóða var þar til umræðu og þótti henni og viðmælanda hennar það ekki gott orð og vilja þau kalla þetta ljósatvist. Þegar svona fólk er að láta í ljós umhyggju fyrir fyrir málinu þá má það ekki enda í tómri vitleysu vegna heimsku. Þegar þessi blessuð stúlka talaði síðar um " max kostnað" við ákveðið mál án athugasemda hjá viðmælanda þá skipti ég um rás. Kjánar.
Kemst hver sem er í þáttagerð?


Hrotur

"Fifty fifty". Önnur konan sem ég bý með hrýtur þó nokkuð.


Er ég feministi?

Þegar ég var í skóla á síðustu öld var mér kennt ýmislegt í matreiðslu og einnig meðferð á fötum og þ.h.. Og núna, 40 árum síðar skil ég ekki ennþá til hvers, fremur en þetta með lærdóminn á tölum og mengjum. Þessa kunnáttu hef ég lítið þurft að nota sem skýrist að nokkru vegna þess að ég er karlmaður og hef yfirleitt haft fólk mér nærri til að gera þessa hluti fyrir mig. Það er að vísu reyndar að miklu leyti leti að kenna að þetta er svona, en líka að þetta eru kvenmannsverk og því ekki fyrir mig. Ég er ekki að þreyta mig mikið við heimilisstörf en legg mikið á mig á átta vikna fresti. Þá sé ég um sameignina fyrir sambýliskonuna þ.e. ruslið niðri og til að byrja með var ég femínisti og ryksugaði ég þar en hef getað sannfært hana um að líkamlegt atgervi bíði þeirra er hlaupi um stiga með Nilfiskinn og hef ég ekki þurft að hafa áhyggjur af ryksugu síðan. En svona til að vera með í heimilishaldinu þá segi ég oft til um hvað ég vil borða þann daginn og tek þátt í innkaupum, útbýti lýsi, næ í kókið og fleira sem þarf karlmannlega vandvirkni við. Og auðvitað borða ég það sem eldað er, annars þyrfti ekki að elda. 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband