Færsluflokkur: Bloggar
2.11.2007 | 19:40
Lýsi
Ég fæ mér alltaf lýsissopa eftir matinn á kvöldin og vitanlega mata ég sambýliskonuna á því líka. Hún fær eina skeið og er ekki með neitt múður en grettir sig mikið og þykir vont. Um daginn keypti hún óvart lýsi með sítrónubragði, reyndar ekki í fyrsta sinn og er það alveg skelfilegt á bragðið. Ég hef reynt að koma þessu niður en þykir ekki gott og gretti mig eftir því.En þar sem ég vil ekki henda þessu þá keypti ég venjulegt lýsi sem ég hef fyrir mig og mata hana á sítrónuglundrinu, hún grettir sig hvort sem er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2007 | 21:38
Neikvæður
Sumum finnst ég vera með tómt nöldur á þessu bloggi mínu. Það er eflaust rétt og ætla ég ekki að reyna breyta því vegna þess að það er ekki hægt að breyta upplagi sínu. Það er í eðli mínu sem íslendingur (já ég veit að það á að vera stórt Í) að vera neikvæður nöldrari og eftir því sem að ferðast er víðar og aldurinn færist yfir, þá verður maður minna heimskur og sér hvað allt er kjánalegt hér. Það er hin íslenska heimska sem gerir mann leiðan og neikvæðan. Í hinni íslensku heimsku felast margar athafnir og gjörðir flestra hér og þar á meðal mín, þar á ég bágt vegna þess að ég er fæddur hér og ræð ekki við það þó að ég vildi. Ef að einhver veit betur en ég um gáfur og yfirburði íslendinga umfram aðra, þá væri gott að fá athugasemd þar um.Og einnig ef að einhver er í vafa um að íslendingar séu heimskir þá bendi ég á eftirfarandi: símatíma hjá Sigurði G og Arnþrúði Karls á útvarpi Sögu, Séð og heyrt er orðið meira en tíu ára, aðsókn að mykjubloggi Ellýjar, "Stelpurnar" með neðanmittisbrandara þykja sniðugar,fólk sem kýs VG og Framsóknarflokkinn (og reyndar hina líka), bloggsíður með nöldurblogg sem þetta og jákórinn í athugasemdum sumra bloggara, hina heilögu, sem fordæma útgáfu á negrabókinni, biblíuþýðingarnöldrara, íbúa í miðbænum sem þykir fínt að búa þar sem migið er á hús og ælt í heimreiðar. Ekki þarf að fletta dagblöðum lengi heldur til að sjá hvað ég meina. Margt fleira má benda á en ég er hættur í bili.
Bloggar | Breytt 1.11.2007 kl. 05:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.10.2007 | 18:57
Íslenskur kjánaskapur.
Það var nú eftir íslenska aulahættinum að láta nappa sig og það fyrir smápening. 6,2 millur rétt duga fyrir einni utanlandsferð fyrir Ólaf Ragnar og fer hann 16 sinnum á ári.
![]() |
Bresku prinsarnir áttu ekki hlut að máli - maður af íslenskum ættum handtekinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.10.2007 | 19:20
Tíu litlir svarthöfðingjar
Mér finnst það fínt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.10.2007 | 22:30
Risahækkun?
Það er nú kannski ekki verst að bensínið hækki. Kunningi minn sagði eitt sinn að það þyrfti að hækka bensínið um helming því þá gengi umferðin betur. Ha? sagði ég.
Þá tíma öryrkjar og gamla fólkið ekki að þvælast um og tefja fyrir í umferðinni, útskýrði hann.
Ekki veit ég neitt um það.
![]() |
Eldsneyti hækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2007 | 22:07
Kvenkynsökumaður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2007 | 09:28
Badminton
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2007 | 20:44
Íslensk leiðindi geta drepið
Nú á að drepa mann, það er lágkúra framundan. Einhver leiðinlegasta hljómsveit landsins fyrr og síðar og með eitt asnalegasta nafnið hefur starfað í 20 ár. Það er best lýsandi fyrir lélegan tónlistarsmekk landans að hljómsveit með svona leiðinlega tónlist og "söngvara" skuli starfa svo lengi. Og ekki bætir nafnið úr skák: Ný dönsk. Heimskir útvarpsmenn hafa nauðgað þessu nafni óbeygðu í tuttugu ár. Fifl.
Ég held að ég hlusti á Rondó næstu dagana til að komast hjá því að hlusta á hryllingsupprifjun á tónlist Nýrrar danskrar, sem eflaust á eftir að vaða uppi á flestum útvarpsstöðvum á næstunni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2007 | 13:08
Við viljum franskbrauð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2007 | 08:50
Brennivín í búðirnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)