Færsluflokkur: Bloggar
6.8.2007 | 01:32
Minneapolis
Gumoren.
Engir islenskir stafir her. I gaer rigndi tegar vaknad var og fram eftir degi. Forum og sottum hjolin um hadegi og tok tad toluverdan tima. Kallarnir fengu hjol med toskum og gleri en konurnar eru gler- og toskulausar. Var hjolad dalitid i gaer og GPS graejan profud.Gekk tat tokkalega og rotudum vid um allt nema tangad sem vid aetludum. Eftir ad hafa skodad 18 Bustadahverfi var gerd athugun a stillingum a GPSinum og gekk betur eftir tad og turftum vid ekki ad skoda fleiri ibudarhverfi um sinn. Gudbjorg ber sig vel to ad bolgin se eftir fallid i Mallinu. Stelpurnar eru seigar. Timamismunur hrjadi folkid i gaerkvoldi og var farid snemma ad sofa og vaknad snemma. Var lagt af stad um kl. 10 i morgun, i fylgd Johns nokkurs, sem er motorhjolamadur og kom hann med kort og fl. og spjalladi smastund vid okkur. Hann vildi hjola med okkur um Minneapolissvaedid i dag en ekki var timi fyrir tad. Var skyjad vel i morgun en birti til uppur hadegi og skein a okkur sol til Huron i Sudur Dakota tangad sem vid komum um kl.1900. Er buid ad vera talsvert um hjol a leidinni til og fra Sturgis og a eftir ad fjolga. Erum buin ad keyra ad mestu a sveitavegum og erum buin ad vera brosmild megnid af leidinni tvi leidin og vegirnir eru "gorgeous". Erum buin ad hjola um tad bil 500 km. og ekki tarf ad kvarta yfir Hallanum, hann fer vel med mann. Tad er ekki god spa fyrir morgundaginn en ekki verdur gratid yfir tvi, en okkur finnst tad sumum skrytid tvi ad Villi var buinn ad segja ad tad rigndi ekkert og eins og hann segir "ta lyg eg ekki um Ameriku". Tad eru um 450 km eftir sem ad vid forum a morgun og eru stelpurnar lagstar a rumstokkinn med baen a vorum um gott vedur. Megi svo verda.
Meira a morgun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.8.2007 | 13:13
Jamm
Gúmoren.
Minneapolis tók á móti okkur med 26 stiga hita og sól. Eftir ad vid komum okkur fyrir á hótelinu var skroppid í Mallid og keyptir símar á lidid tví ekki er hægt ad vera sambandslaus hér. Eitt stk Nokia á 42 dollara og verda svo keypt kort eftir tørfum. Í morgun voru allir vaknadir snemma ad stadartíma og fórum vid í ponnukokuhúsid í Amerískan breakfast. Núna er bedid eftir ad fólk vakni hér svo hægt verdi ad gera eitthvad, sækja hjólin og svfr. Í gær datt Gudbjørg í stiga í Mallinu og meiddi sig á hné, er ekki enn séd hvort tad sé alvarlegt en hún ber sig vel og segist geta hjólad.
Meira seinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2007 | 09:56
Jamm
Gúmoren.
Jæja, enn er maður pollrólegur yfir þessari Ameríkuferð þó að Villi og Kalli séu með nettan tremma af spenningi.Stúlkurnar og Palli taka þessu léttar. Ég vaknaði bara tvisvar í nótt, alveg rólegur,til að skoða dollarana og raða eftir númerum. Það verður lagt í hann upp úr hádeginu suðureftir og í loftið kl. 1630. Við verðum með leiðsögumann í Minneapolis þegar við verðum búin að fá hjólin á laugardag. Er það mótorhjólakappi sem ég kynntist á netinu og hringdi hann í mig í gær og sagðist vera búinn að plana eitthvað fyrir okkur.Við sjáum til þegar að því kemur, gæti verið að ég þyrfti að hitta Bush, hann verður eitthvað að þvælast þarna um helgina út af þessu brúarslysi. Kemur allt í ljós.
Farvel fúla Frón.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2007 | 21:36
Ameríka
Gúmoren.
Nú er að styttast í Ameríkuferðina. Maður er náttúrulega sallarólegur yfir þessu en ferðafélagarnir eru meira og minna með ferðaskitu þó að ekki verði farið fyrr en á föstudag. Mér skilst að þeir séu búnir að viða að sér "valútu" og geymi hana hjá sér í búntum , nema kannski Palli. Það tekur því ekki að hafa neitt minna með sér en fimm til sex búnt, helst með Franklinum, annað þykir lélegt .
Eitthvað verður reynt að blogga ef færi gefst og jafnvel settar inn myndir ef að kunnátta leyfir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.7.2007 | 18:19
Alltaf sama bullið.
![]() |
Íslenskt bakarí komið í úrslit í keppni í Flórída |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.7.2007 | 22:53
Þetta er bara svona.
Það hafa ekki margir óskað eftir því að verða bloggvinir mínir. Hef ég ekki marga eignast hingað til og einum bláedrú stjórnmálamanni eyddi ég af listanum eftir að hafa séð að hann var bara að safna bloggvinum fyrir kosningar. Það er hver og einn ráðandi um hver er hans bloggvinur og hver ekki. Sjálfur hef ég ekki tranað mér fram nema á einum stað sem sjá má. Ég geri kröfur til þeirra sem ég set inn sem bloggvini eins og t.d.: ég vil ekki púrítana og femínista, kvenrembur og fasista, karlrembur eru í lagi, kommúnistum þarf ég að velja úr, því margir af þeim eru skemmtilegir þó að þeir hafi heimskulegar skoðanir. Ekki vil ég þá sem lesa "séð og heyrt" sem æðsta orð og ekki vil ég þá sem leggjast lægst, þ.e. eru bloggvinir á "hringlhausabloggi" Ellýjar.
En ég þarf víst ekki að hafa miklar áhyggjur af mörgum bloggvinum, það eru ekki það margir sem villast hingað inn og vilja þaðan í frá vera "memm".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2007 | 08:49
Erfitt líf.
Úff.
Erfiðar aðstæður. Ég var að uppgötva hvað allir eru að eldast í kringum mig. Önnur systir mín verður fimmtug á næsta ári og hin er umtalsvert eldri. Dóttir mín er nær þrítugu en tíu ára og meðalaldur félaganna í klúbbnum er fjörutíu og átta ár. Viðskiptavinirnir fá flestir frítt í sund og strætó.
Það er ýmislegt á mann lagt, ekki eldri en maður er.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.7.2007 | 15:46
Hinir heilögu
![]() |
Eigandi Goldfinger og dansari á staðnum sýknuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.7.2007 | 14:06
Ég gat það.
Ég fór hringinn á mótorhjólinu í gær. Ekki af því að landið sé svo fallegt eða svo margt sé að sjá. Ekki heldur til að sjá hve hratt yfir ég gæti farið. Heldur vegna þess að mig langaði að vita hvort ég gæti það.Þetta tók rúmlega átján tíma og er ekki frítt við að maður hafi verið þreyttur á eftir. Lenti í dalalæðu og þoku (ekkert að sjá)frá Sólheimum austur á Reyðarfjörð og skítakulda þar af leiðandi. Rétt við Egilsstaði birti til og sólarglenna fylgdi mér í Öxnadal. Eftir það var skýjað en þokkalega hlýtt. Ég hef fengið að heyra ýmislegt um þetta tiltæki. Tilhvers að fara í einni lotu? Og afhverju einn? Þú ert ruglaður og fleira þessháttar hef ég fengið að heyra. En það er nú bara afþví að ég er ekki eins fullkominn og þeir sem tjá sig um þetta. Kannski á maður bara að vera "normal", sitja heima og lesa Ísfólkið. Það og því um líkt þykir "normal". En þetta var skemmtilegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.7.2007 | 19:28
Sígó
Gúmoren.
Var að klára kvöldmatinn og heyri lítið í sjóninu fyrir eldhúshávaða, skil ekki afhverju er ekki hægt að taka til þegar ég er ekki heima. Best að blogga smá á meðan að beðið er eftir ísnum. Nú eru rúmir þrír mánuðir síðan ég reykti síðast og er ég alveg rosalega heilbrigður. Þorgrímur hvað? Ég er að spá í að ef að ég reyki í Ameríku í næsta mánuði,er það talið sem fall eða er maður stikk þarna úti? Hugsið ykkur, hjálmlaus í hlírabol á Harleyinum á 60 mílum um sveitavegum S-Dakota með Marlboro öðru megin, cool. Nei, kannski ekki. En gott samt.
Jæja, þetta er liðið hjá.
Vill einhver ís?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)