Færsluflokkur: Bloggar

Sprengidagur

 

Gúmoren.

Ég er yfirleitt vel haldinn . Konan sem ég bý með hugsar vel um mig. Það er ekki reynt að troða einhverju í mig sem á að vera gott heilsunnar vegna eða mig langar ekki í.Hjá mér er yfirleitt tvíréttað, annars vegar t.d. makríll,soðnir svínaskankar,ampalaja,pansett,lumpia,fullt af grænmeti og hrísgrjón með öllu.Hins vegar fyrir mig. Kótilettur og svið eru ofarlega á mínum vinsældarlista ásamt góðum borgara og reyktu svínakjöti. Egg og beikon er líka gott í bland við flestan íslenskan mat. Og ekki þarf mín vegna að prófa einhvað"nýtt og spennandi".Austurlenskt , thai, kínverskt eða hvað þetta dót heitir nú. Ég er til dæmis ekki gefinn fyrir "brauð fátæka mannsins"þ.e.hrísgrjón, flest soðið grænmeti og annað í þeim dúr.Eins og ég sá einhvers staðar, "að ef Guð .vildi að við værum grænmetisætur þá væru dýrin ekki að mestu leyti kjöt". Ég vil bara fá mitt bras og engar refjar.Í árdaga þessarar sambúðar þá borðaði ég flest af því sem á borð var borið og setti ekki útá matseldina. Enda kurteis drengur. En eftir því sem á leið, sá hún að af sumu var minna borðað en öðru og er ég núna búinn að sortera frá þetta drasl sem mér finnst ekki gott með því að fá endurtekið lystarleysi þegar sumir réttir voru á borðum. Án nöldurs. Fæ ég því í dag að borða það sem ég vil og ís á eftir. Heldur hún í íslenskar hefðir fyrir mig eftir tilefnum þó smá tíma hafi hún þurft til að læra að hluta íslenska matseld. Saltkjöt á nefnilega ekki að steikja í raspi eins og kótilettur,bera fram með frönskum og salati,það veit hún í dag.

 En saltkjötið í kvöld var fínt.


Mikið að gera.

Það er svo mikið að gera þessa dagana að mann brestur kraft í bloggið. Það vill til að ekki er þetta oflesið hér sem hjá þeim vinsælu. En einhverjir villast hér inn stundum og er það gott fyrir sálartetrið að sjá að ekki er maður alveg afskiptur.

Er alveg að drepast úr áhyggjum af henni Britney. Mér líst ekkert á þetta.


Vit.

 

Gúmoren.

Ég er mikill gæfumaður. Það er svo mikið af gáfufólki í kringum mig. Ég er fyrir það fyrsta í mótorhjólaklúbbi og það eru nú fleiri en þrír vitringar þar, þó enginn sem keppir hjá Loga.Mæti ég þar sem oftast til að auka visku mína. Þar hefur maður bætt við sig þekkingu á mörgu sem við kemur mótorhjólum,mannlegu eðli og samskiptum manna á millum.Hef ég áður sagt frá dóttur minni, sem nemur í háskóla,alþjóðamarkaðsfræði, heitir það þar og stendur hún sig vel. Var ég að heyra líka af systurdóttur minni, sem líka er ofsalega gáfuð. Hún var að útskrifast með fyrstu einkunn úr háskóla, til hamingju með það Íris, hún lærði þar mannauðsstjórnun. Ég er nú ekki með það alveg á hreinu hvað alþjóðamannauðsmarkaðsstjórnunarfræði er, því það var bara bóknáms og verknáms þegar ég var í skóla. En þetta er eflaust eitthvað sem kemur stúlkunum vel í framtíðinni þó að ég skilji þetta ekki. Systur mínar eru heldur ekki ógáfaðar, báðar með hvítar húfur til taks ef að með þarf. Ég átti einu sinni húfu líka en hún var reyndar ekki tengd lærdómi. Er samt enginn rati því ég er bæði með bíl- og mótorhjólapróf. Ég tel mig reyndar eiga dálítið í frama systra minna á námsbrautinni með því að hjálpa aðeins til með tungumálin, en það er nú önnur saga. "Bjæf". Það er mikil gæfa að þekkja svona mikið af mannvitsbrekkum og hefur það hjálpað mér mikið í lífinu. Takk fyrir það.

Bókvitið verður ekki í ......... æi, ég man ekki hvernig þetta var, spyr að því uppi í klúbb.


Bjór í beinni.

 

Það var einhver gutti að prófa ökuhermi í Kastljósinu áðan. Hann byrjaði bláedrú og drakk að ég held 5 bjóra á meðan á tilrauninni stóð. Sást strax á öðrum bjór hvað einbeitning og viðbragð þvarr. Það er ekki víst að allir geri sér grein fyrir því hvað það er mikið magn af áfengi í einum bjór. Það er jafngildi tvöfalds vodka þar. Mér fannst það gott hjá guttanum að koma og sýna sig alþjóð, vonandi sér og öðrum til viðvörunar, hvernig athyglisgáfan þverr eftir því sem meira er drukkið. Eitthvað sem allir vita en margir afneita. Það var líka gaman að sjá að guttinn (Andri Freyr) týndi líka íslenskunni eftir því sem á leið. Hann verður lukkulegur þegar hann sér upptöku af þættinum.

Ég var að spá í þessa 30 til 40 sem eru teknir vikulega fyrir ölvun við akstur. Þ.e. hvernig þeir ferðast um? Ekki virðist fjölga í Strætó.

 

Steinn úr glerhúsi.


Sex dagar.

Ekki verið bloggað hér í sex daga. Það er svo sem ekkert að blogga um?Breiðavík? OMG? Á Íslandi,getur það verið? Byrgið? Nei það er orðið gamalt efni. Barnaperrar? Nei, ekki heldur, líka orðið gamalt. Íslendingar eru eins og þorskar sem eru veiddir á stöng,brjótast um í 2-3 mínútur,svo er allt búið. Breiðavík verður gleymd í næstu viku eins og öll önnur mál, sem dúkka hér upp reglulega og allir hafa sína skoðun á, en enginn gerir neitt í málunum.Kannski að einhver alþingismaður minnist á það í ræðustól Alþingis til að fá það skráð í þingskjöl hversu manngæska og umhyggja hans er mikil. En að öðru leyti breytist ekkert.

"Ísland best í heimi"

P.S. Sá einhvers staðar hér að það eru 15 ár síðan okkar "ástsæli" forseti talaði um "skítlegt eðli" í ræðustól á Alþingi. Einhver var víst að setja ofan í við "HANN".


Markahæstir?

Litlu verður Vöggur feginn.Ég hélt að markmiðið hefði verið að vinna sem flesta leiki, "silly me".

Hvernig fór leikurinn annars?


mbl.is HM: Fimm Íslendingar á meðal tíu markahæstu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snjórinn

 

Gúmoren.

Ég varð dálítið pirraður þegar ég leit út í morgun. Hvítt yfir öllu, reyndar bara föl. "Það verður ekki mikið hjólað á næstunni" hugsaði ég. Það er búið að vera allsendis ómögulegt að taka smárúnt það sem af er ári. Það er nefnilega eitt af því sem er nauðsynlegt í þessu lífi, smárúntur á hjólinu annarslagið. Þar sem ég er í mótorhjólaklúbbi, þá sé ég ýmsar birtingarmyndir svona pirrings út af veðrinu hjá félögunum þannig að ég er ekki einn um þetta. En þar sem ég var að fara að vinna og vera innanum fólk, þá dugði ekkert að vera fúll lengur og bara sætta sig við að þetta fylgir því að  búa á þessu leiðindaskeri. Ég er yfirleitt dagfarsprúður og slampast í gegnum lífið nokkuð glaður. Þess vegna gæti ég aldrei verið vinstri grænn eða samskonar framfarahemill. Mér sýnist það fólk nefnilega alltaf vera hálfpirrað. Ég væri það líka ef að ég æti sellerí í annaðhvert mál eins og þingfrænka systra minna, sem býr í vesturbænum.Reyndar býr mikið af þessum framfarahemlum þarna niðurfrá í 101 og -7. þar er í flestum tilvikum bara útsýni í næsta hjall og þessvegna er þetta fólk svona sípirrað og skammsýnt.Þar hefur það búið megnið af sinni tíð og stærir sig stundum af því að þurfa aldrei að fara út fyrir svæðið. Þess vegna er það heimskt(flettið orðinu upp ef þið skiljið það ekki). Mikið rosalega er ég feginn að hafa verið bara pirraður út af snjónum, ég hefði orðið ennþá súrari ef að ég hefði vaknað sem vinstri grænn.


Ha? Tap?

Um hvaða sæti verður spilað um þegar þeir tapa fyrir "Spanjólum"?
mbl.is Íslendingar leika um 7. sætið eftir tap fyrir Rússum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snemma beygist krókurinn.

 

Gúmoren.

Það eru auglýsingar í sjónvarpinu. Náungi kemur  á veitingastað og segist eiga pantað borð. Og  "med det samme" er ég kominn aftur til 1970, í Las Vegas á Grensásveginum. Þetta var á þeim árum er maður fór á barinn og keypti gos, því vín var ekki að hafa á svoleiðis stöðum á þeim árum. Þar sem ég stend og bíð eftir afgreiðslu, tek ég eftir poppstjörnu þess tíma,sem verið er afgreiða. Hann borgar með ávísun og ung stúlka sem tekur við henni, biður hann að framselja ávísunina. Hann horfir á hana í forundran og spyr með hneykslan: Veistu ekki hver ég er?  Auðvitað vissi stúlkan hver hann var og ég vissi það líka og líklega flestir þarna inni. En þarna sýndi þessi drengur sjálfsánægju og sinn yfirgengilega hroka, þannig að ég hef aldrei getað litið hann réttu auga síðan. Mér hefur alltaf leiðst hrokagikkir eins og þessi( hann er líka slæmur þessi sem augýsir bíla milli þess sem hann gerir "copy/paste" við eldri plötur sínar). Ég hef ekkert á móti því sem þessi maður hefur sent frá sér í gegnum tíðina, mjög gott flest af því, en þetta atvik í Las Vegas er alltaf í minninu.

 Ég held að hann hafi ekki þurft að leika í þessari auglýsingu, hann hefur engu gleymt.


"Mannleg" mistök?

Hverskonar bull er þetta? Þetta voru mistök. Ekki apaleg,hundaleg eða mannleg. Mistök.
mbl.is Mannleg mistök urðu til þess að föngum tókst að strjúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband