Færsluflokkur: Bloggar

Hrós.

Ég vara spjalla við kunningja minn í gær,athafnamann úr Borgarfirði,og fór vel á með okkur. Hann sagði eitthvað í þá veru að ég væri hið svartasta íhald og djöfulsins fasisti hér á blogginu.Mér þótti vænt um að heyra þetta frá honum,hann er nefnileg ekki vanur að hrósa fólki.

Verðlaun án keppni.

Það var verið að úthluta "verðlaunum" til blaðamanna á Holtinu áðan. Ég hefði ekki tekið eftir því ef ég hefði ekki farið inn á mbl.is/mm/blog/ ,þar sem fólk jarmaði á verðlaunahafa hamingjuóskum í bunum. Það er kannski góður siður að verðlauna fólk fyrir afrek ef það keppir og sigrar. En að verðlauna fólk fyrir að mæta í vinnuna er fíflagangur.Á það ekki bara við um blaðamenn. Og finnst mér að þetta fólk þyrfti að skoða "afrek" sín á síðustu mánuðum þegar það tekur við hilluskrautinu. Með afrekum meina ég t.d. þær spurningar sem ekki komu fram hjá þessu "afreks"fólki þegar mikið lá við.
    Svo fæ ég alltaf broskippi þegar ég hugsa um hvers konar vinnu þetta fólk fengi á alvöru fréttastofum.

Í framboð.

Það rignir inn tilkynningum frá fólki sem ætlar að gefa kost á sér í komandi prófkjöri hjá flokkunum. Þar sér maður ýmis nöfn sem eru kunn og önnur óheyrð og ókunn. Mér finnst dálítið skrýtið að fullt af fólki sækir núna fram með vissu um eigið ágæti og ætla ég ekki að setja út á það. En mér þætti gaman að vita hver hefur sagt þessu fólki að það sé hæft í það starf sem að þess bíður ef kjöri er náð. Og hvað veit það um störf á Alþingi? Ekki að það skipti kannski öllu máli því fullt af fólki hefur verið þar án þess að hafa hugmynd um hvað þar á að gera.En ef einhver af þessum nýgræðingum, og reyndar hinum vönu líka, ætlar að telja mér trú um að breytingar séu framundan,þá gubba ég á viðkomandi.Það koma tilkynningar um flokkaskipti,hætt við framboð,vill ekki í framboð vegna klíku og svo framvegis. Heldur einhver að þetta verði öðruvísi?

http://www.tonlist.is/Music/Player.aspx?ID=42367

 


Gott að hafa háleit markmið.

Mikið verður gaman ef þetta gengur eftir,að spyrja af djörfung er nýtt í íslensku sjónvarpi.Að spyrja af offorsi er ekki nýtt hér en "frétta"guttarnir hafa hingað til haldið að það væri það sama. Einnig mætti þessi gutti reyna að fá svar við öllum spurningum en ekki láta afvegaleiða sig með þvargi,það væri líka nýtt.Það væri ekki vitlaust hjá þessum "frétta"guttum að horfa nokkrum sinnum á þáttinn "Hardtalk" til að sjá hvernig á að tala við fólk. Það lærir enginn fréttamennsku á því að tala við börn á leikskóla.
mbl.is Spyr spurninganna sem fólkið heima í stofu vill spyrja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í kreppunni.

 Það er kreppa núna og það verður að láta sér á mót. Mér sýnist þetta vera í líkingu við íslensk viðbrögð.

 

striphandler


Að reykja eða ekki reykja.

Ég þurfti að skreppa niður í klúbb í gærkvöldi og á leiðinni var hringt í mig og ég beðinn um að kaupa einn pakka af sígarettum fyrir viðkomandi. Þar sem ég er leiðitamur varð ég við þessu.Ók að lúgunni á Nesti,setti arminn út um gluggann, lyfti mér í sætinu og sönglaði: "Einn Marlboro" og þóttist vera kúl. "Sjöhundruðtuttuguogfimm" mantraði lúgufésið á móti. "Ha" hváði ég og seig í sætinu. "Sjöhundruðtuttuguogfimmkall"sagði fésið aftur.Ég tók pakkann,borgaði og ók í burtu.Ég hafði sigið niður í sætið þegar ég heyrði þessa upphæð. Nú er ég búinn að vera hættur í sexhundruð og sextíu daga og þar sem ég reykti rúmlega tvo pakka á dag þá hef ég sparað á verðlagi dagsins: níuhundruð fimmtíu og sjöþúsund krónur. Ég lyftist aftur í sætinu við þennan hugarreikning og hugsaði: Það er ég sem er kúl,ég reyki ekki. 

Dregur sig í hlé?

Hvers konar fyrirsögn er þetta? Ég hélt að hann ætlaði að hætta á þingi.Þessi maður skorar það hátt á leiðindalistanum að ekki heyrir maður alltaf hvað hann hefur fram að færa er hann galar. Reyndar er svo með marga í VG. Ég veit ekki hvað hann er fær um en ólíkt skemmtilegra yrði ef hann fengi einhvern til að koma því á framfæri fyrir sig.


mbl.is Ögmundur dregur sig í hlé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf í ræktinni.

 

Það er að bera í bakkafullan lækinn að skrifa um stjórnarskipti og ástandið í landinu svo ég sleppi því núna.Ég var að koma úr ræktinni (gott að skrifa um sjálfan sig,það er eitthvað sem maður þekkir) og er nýbúinn að uppgötva að þar er hjólatími sem gengur út á hamagang á hjóli. Þetta er kallað "spinning" og er helv... puð. Klukkutími eða svo í einu á útopnu. Ég hefði kannski ekki veitt þessu athygli ef ég hefði ekki séð gyðjuna sem ég sagði frá um daginn fara inn í annan sal þar sem þetta er stundað. Og þar með var ég kominn með áhuga á "spinning". Fyrst byrjaði ég að kíkja aðeins á þetta og sá að þetta var ekkert fyrir mig,lungnalausan manninn. Tveimur dögum seinna kíkti ég aftur og sá þarna fullt af fólki.Og hana. Ég stóð þarna í dyrunum og allt í einu horfði hún að mér og sagði: "Skal du ikke være med?" Ég horfði í kringum mig en sá engan í nánd og skildi þá að hún var að tala við mig."Gisp". Það kom aukaslag.Hún sá mig,talaði við mig og vissi að ég er til. Skítt með dönskuna,ég get allt. "Jeg kommer nu" sagði ég og vippaði mér inn í salinn og að næsta hjóli.Hún brosti við mér og ég fór að skoða þetta hjól eins og sá sem allt kann.Skellti mér á bak og fann að ég kunni ekki neitt.Einhver hlunkur sem hafði komist á milli okkar sýndi mér hvernig átti að stilla hjólið og var mér þá ekkert að vanbúnaði.Þjálfinn spilaði tónlist,nokkuð hátt, og skildist mér að hjóla ætti í einhverjum lotum,hægt og þungt,létt og hratt.Ég byrjaði rólega og virti fyrir mér fólkið í salnum. Það voru sextán á hjóli,á öllum aldri og í öllum þyngdum. Og hún var þarna skammt frá. Ekki vildi ég láta sjá að ég væri óvanur svo ég hjólaði sem hinir um stund. "Þyngja um hálfhring og standa" gólaði þjálfinn allt í einu.Tónlistin var hækkuð og allir stóðu upp. Hlunkurinn hafði sýnt mér hvernig átti að þyngja og gerði ég svo. Og stóð upp. Og settist. Ég sit þegar ég vil,hverskonar fíflagangur er þetta,er þér alveg sama um lærin á mér? Þjálfinn hafði hækkað í græjunum og heyrði ekki í mér,reyndar enginn annar heldur. Svo ég hjólaði bara rólega með,það þarf nú að anda líka. Ekki var heldur hægt að láta gyðjuna sjá að ég gæti þetta illa.Og enn var hjólað út í eitt,mismunandi tónlist eftir því hvað átti að æfa.Ef það var eitthvað erfitt þá fór ég af baki og lagaði pedala eða eitthvað annað.Ég ætlaði nú ekki að sprengja mig eins og blöðru.Eftir að hafa vanist þessu hjóli fór ég að líta í kringum mig betur og sá að fullt var af gellum þarna og hefði maður líklega gleymt sér í dagdraumum ef Stefán Hilmars hefði ekki veinað í græjunum ,"Sódóma"  og þjálfinn galað "þyngja". Eftir það var nú farið að síga á seinni hlutann og ég kominn í stuð. Hjólaði aftur á bak og áfram,brosti til hægri og vinstri og blés ekki úr nös.Enda búinn að stoppa og laga pedalann nokkrum sinnum. "Your simply the best" söng Tina og var ég henni sammála.Þetta endaði svo með rólegu vangalagi og teygjum.Svo þurfti að þrífa hjólin og æfði ég mig á dönskunni á meðan.Maður lætur ekki hanka sig á smáatriðunum."Solen skinner om dagen,hvad hedder du,er du fra Odense? Min söster laver gode frikadeller".
En ég þurfti ekki á því að halda því gyðjan hvarf á meðan. Ég nota það þá bara næst þegar hún talar við mig.


Bómullarkallar.

Mikið væri gaman ef einhver af þessum erlendu fjölmilðum sem skrifar um mannlíf og ástand hér á landi,myndi leita upplýsinga hjá fólki. Fólki sem hefur einhverntíma unnið,unnið með höndunum og þurft að reyna á sig. Fólki sem ekki veifar gjörsamlega ónotuðum, forsetalíkum, höndum.Það væri tilbreyting.
mbl.is Bjartar sumarnætur að baki á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppgerðar kurteisi?

Tók nokkur eftir að Steingrímur J.var kominn með ráðherrafas í Kastljósinu í gær. Það var lítið um frekju,framhleypni og hroka sem hefur verið hans aðalsmerki. Og ekki bregðast mér íslendingar fremur en fyrri daginn,halda að framsókn sé eitthvað sem geti bjargað einhverju í þessu guðsvolaða landi. Það er aumt að halda að drengur sem ólst upp í framsóknarbæli og lifði í framsóknarbæli,skuli vera bjargráður,sem geri betur en áar hans.
            Sorglegt.
mbl.is Framsókn með 17% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband