Átak

Nú gengur þetta ekki lengur. Ég er kominn í átak með þyngdina, fór í gær með sundtöskuna niður í bíl og fer bráðum að fara í sund, þegar ég má vera að. Þeir eru farni að gjóa á mig augunum félagarnir uppi í klúbb, segja ekkert en opna stóru hurðina fyrir mig þegar ég kem. En þegar þrennupakkinn frá Góu verður búinn og nokkrir íspinnar í kistunni, þá verður þetta auðveldara, klára snakkið líka með ídýfunni því ekki vil ég að þetta skemmist.Mér sýnist að ég verði kominn á fullt sving um miðjan október ef að allt gengur vel. Þá getur vel verið að ég láti konuna sem að ég bý með vita af átakinu, það er óþarfi að láta sér of mikið í mót strax.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Andri Yngvason

Ég get staðfest það að sundtaskan er í rauninni komin í bílinn

Andri Yngvason, 10.9.2007 kl. 00:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband