Kreppuhjal.

Ekki hef ég komið með margar né miklar útlistanir um aðdraganda hrunsins eða eftirmála þess. Það hafa margir mér fremri útskýrt þau mál og komið með jafnmargar lausnir og er allt þetta lausnafólk  að jafnaði steinhissa á að ekki séu þeirra lausnir notaðar. Ég hef verið að fylgjast með því sem fólk segir og skrifar og hef ekki séð að einn standi öðrum framar í þeim efnum. En nýlega rakst ég á myndband á vefnum þar sem farið er yfir þessi mál af festu og viti, sem ég hef ekki séð né heyrt hingað til. Hvorki frá viðtalsglöðum álitsgjöfum, alvitrum bloggurum eða fáorða fésbókurum. Þarna er farið yfir allt og þætti mér ekki vitlaust hjá Kastljósi að fá þessa stúlku til skrafs því öllu gáfulegra tal um kreppuna hér hef ég ekki séð.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband