Færsluflokkur: Bloggar

Hlaupársdagur

Þetta er búinn að vera erfiður og kostnaðarsamur dagur. Ég er búinn að kaupa alveg fullt af konfekti og blómvöndum sem að ég hef þurft að gefa. Það er nefnilega þannig að konur geta á hlaupársdaginn beðið sér manns og má hann ekki neita en getur keypt sig frá þessu með gjöfum. Þannig að núna er ég alveg skítblankur.

Réttur kunningsskapur?

Kunningi minn var að verða afi. Hann er ekki sá fyrsti af þeim til að verða afi og tel ég nokkra afa til kunningja minna. En ekki veit ég hvenær eitthvað fór úrskeiðis varðandi þessi gamalmenni, þeir hafa líklega elst svona mikið hraðar en ég, eða kannski er ég bara gömul sál í bráðungum líkama.


Árangur

 

Jæja, þá er maður búinn að vera í ræktinni í rúmar tvær vikur. Þetta hefur verið dálítið púl og hefur tekið á. Maður mætir á morgnana og oftast er sama fólkið á staðnum og var þar í gær. Þetta gengur út á að maður labbar á milli tækja og er smástund við hvert. Þessar tvær vikur hef ég aðallega verið í að teygja, hvíla mig og fara í pottinn á eftir. Ég fer eftir ákveðnu kerfi og veit að ekki má fara of geyst af stað því að þá getur maður ofreynt sig. Mér er búið að ganga rosalega vel og þegar að ég verð tilbúinn þá kveiki ég á göngubrettinu og set kannski hjólið í gang,læt ekki bara renna. Eins verður með þessi lyftitæki,ég er enn að spá í hvernig þetta er notað og fylgist með hvernig hinir gera. Það gengur nokkuð vel og er ég búinn að ná flestum grettunum hjá hinum og hef verið að æfa þær sérstaklega við spegilinn,því að mér sýnist þær skipta miklu máli. Svo get ég alltaf lyft einhverju seinna. En aðalatriðið er að mæta. Eftir allt púlið þá fer maður í sturtu og síðan í heita pottinn, enda getur maður  ekki synt eina eða tvær ferðir, útkeyrður eftir allar gretturnar. Þegar farið er í sturturnar þá verður að passa sig að fara ekki í sturtuna sem að Halli notar alltaf og ekki má heldur sitja í pottinum þar sem Gústi er vanur að vera því þá verður hann afskaplega pirraður. Ég held að sumir af þessum köllum séu dálítið vanafastir.Mér kvíðir fyrir því að verða kall.


Gáfur.

Það fer ekki alltaf saman að vera þokkalegur tónlistarmaður og að vera gáfaður og hafa vit á einhverju.
mbl.is Hætt við tónleika vegna orða Bjarkar um Kosovo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kominn úr skápnum

Í viðtali í sjónvarpinu við lögreglu kom fram að Annþór hefði fundist inni í skáp. Skyldi honum ekki líða vel að vera kominn úr skápnum.
mbl.is Annþór kominn í leitirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í ræktinni

 

Jæja,þá er maður byrjaður í ræktinni og ekki lengi að skera sig niður, tekur bara nokkra daga. Og af því að maður er orðinn helmassaður þá lét ég aðeins laga hárið, strípur og þ.h. þetta verður allt að passa. Rosalega er ég orðinn flottur.

smallbodybuilderBM_450x532


Athugasemd

Smá athugasemd. Fréttum frá Sovétríkjunum, sem var gefið út af fréttastofu APN á Íslandi, var dreift í nokkur hundruð eintökum að mestu áskrifenda en ekki borið í hvert hús eins og þarna segir. Var þetta í dagblaðsbroti og innihélt skrumskældar "fréttir" sem hugnaðist þeim er stjórnuðu austur frá að sagt væri frá. Það var Rússi sem að stjórnaði þessari ´"fréttastofu" en honum til halds og trausts voru María Þorsteinsdóttir,nú látin og Ingibjörg Haraldsdóttir skáldkona. Þeir sem fengu þetta blað voru áskrifendur,sem fæstir vildu borga, og flestir voru þekktir vinstra megin í pólitík.
mbl.is Af vígvöllum ástar og haturs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta hvíta?

það er eitthvað hótel fyrir norðan sem að auglýsir á þessa leið: "Það er svo gott þegar þetta hvíta kemur". Ég er þeim alveg sammála.

Arabar

 

Ég var í Ameríku um daginn. Guttinn minn var með og fylgdist vel með því að ég hef haft mörg orð um að heimsóknir til annarra landa en Ameríku væru tilgangslausar. Hafði hann fljótlega orð á kurteisi heimamanna og hafði að sögn ekki orðið var við samsvarandi framkomu hjá paella snæðandi spanjólum né baunum frændum okkar. Er ég nokkuð sammála honum um þægilega framkomu kana og líkar mér vel við að vera þar. En samt lenti ég nú í dónaskap þarna og veit ég ekki hvort sá kaupmaður sem ég ræddi við er innfæddureða ekki en hafði ég heyrt af hans líkum og hefði átt að forðast hann og hans hyski. Þegar ég var drengur , þá var eitt af skammaryrðum sem notuð voru á þessa leið: Helvítis arabinn þinn. Þetta var sagt ef að mikið lá við. Þetta á við enn í dag. Helvítis Arabar.


Barnabarnabarna........

Ég ætlaði að blogga um eitthvað merkilegt en gleymdi hvað það var.
   Það var verið að lesa dánarfregnir í útvarpinu núna og eins og vanalega var afskaplega mikið af barnabarnabarnabarnabarnabörnum á meðal tilkynnenda. Tungubrjótur. Sumir, sem að kannski hugsa, láta sér nægja að segja: aðstandendur. Ég skil það betur en hina hörmungina.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband